Grindavík/Njarðvík tapaði stórt fyrir Breiðabliki
Grindavík/Njarðvík hóf keppni í efri hluta Bestu deildar kvenna með 4–1 tapi gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli í gærkvöldi. Blikar lögðu grunninn að öruggum sigri strax í fyrri hálfleik og leiddu 3–0 í leikhléi.
Agla María Albertsdóttir kom Breiðabliki yfir strax á annarri mínútu og aðeins tíu mínútum síðar bætti Kristín Dís Árnadóttir við öðru marki heimakvenna.
Edith Kristín Kristjánsdóttir skoraði þriðja mark Breiðabliks á lokamínútu fyrri hálfleiks og staðan því 3–0 þegar liðin gengu til búningsherbergja.
Júlía skoraði mark gestanna
Þórdís Elva Ágústsdóttir kom Breiðabliki í 4-0 á 52. mínútu. Átta mínútum síðar náði Grindavík/Njarðvík að klóra í bakkann þegar Júlía Ruth Thasaphong skoraði.
Fleiri mörk voru ekki skoruð og lokatölur urðu 4–1 fyrir Breiðabliki. Um var að ræða fyrstu umferðina eftir að Bestu deildinni var skipt í efri og neðri hluta.
Alls mættu 310 áhorfendur á Kópavogsvöll.







