Uppbyggingarsjóður 2026
Uppbyggingarsjóður 2026

Fréttir

Stærsta gervigreindarský Norðurlanda stækkar á Fitjum
Eva Sóley Guðbjörnsdóttir, aðstoðarforstjóri atNorth. VF/hilmarbragi
Sunnudagur 20. september 2026 kl. 05:55

Stærsta gervigreindarský Norðurlanda stækkar á Fitjum

Leita að samstarfsaðilum til að nýta afgangsvarma

Gagnaversfyrirtækið atNorth ráðgerir að halda áfram miklum vexti sínum í Reykjanesbæ, en gagnaverið á Fitjum er í dag eitt stærsta gervigreindarský á Norðurlöndunum. Eva Sóley Guðbjörnsdóttir, aðstoðarforstjóri atNorth, kynnti umsvif og framtíðaráform félagsins á Atvinnu- og framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar. Fyrirtækið, sem á uppruna sinn að rekja til svæðisins, rekur í dag sjö gagnaver á Norðurlöndunum og fjárfestir fyrir um 200–250 milljarða króna á ári, þar af umtalsverðan hluta í Reykjanesbæ.

Hámarkssjálfbærni og milljarða verðmætasköpun í nærsamfélaginu

Vegna hagstæðs veðurfars og kælingar á Fitjum er orkunýtni gagnaversins með því lægsta og besta sem gerist á heimsvísu. atNorth óskar nú eftir samstarfsaðilum til að nýta afgangsvarma sem myndast við reksturinn, en tækifærin felast meðal annars í uppbyggingu í gróðurhúsaræktun eða annarri starfsemi í nærumhverfinu. Það væri meira að segja hægt að hita upp baðlón með varmanum sem verður til í gagnaverinu.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Verkefnið hefur umtalsverð efnahagsleg áhrif, en óháð úttekt KPMG sýnir að fyrir hvert starf hjá atNorth verða til um 12 afleidd störf. Áætlað er að efnahagsleg verðmætasköpun félagsins í nærsamfélaginu í Reykjanesbæ nemi um 76 milljörðum króna á næstu árum, auk þess sem umtalsverðar fjárhæðir munu renna í samfélagsverkefni á svæðinu. Eva Sóley undirstrikaði að mikill metnaður ríkti hjá félaginu og viðskiptavinum þess til að halda áfram uppbyggingu í Reykjanesbæ og vera virkur og samfélagslega ábyrgur þátttakandi á Suðurnesjum.

Í spilaranum hér að neðan er upptaka frá þinginu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn