107 Röggur
Á þeim rúmum fimm árum sem við fjölskyldan höfum búið í París hef ég reynt að fara reglulega til Íslands – auðvitað til að hitta fjölskyldu og vini – en ekki síst til að hitta hárgreiðslumanninn minn og fara í klippingu. Jú, það eru vissulega hárgreiðslustofur í París, en ég er mjög trygglynd kona (já, og íhaldssöm) og finnst engin ástæða til þess að breyta um klippara þegar ég er svo ánægð með minn. Þetta þýðir að ég hef verið að koma að jafnaði á 6-8 vikna fresti til að sinna þessu mikilvæga verkefni. Þetta sumar hefur verið undantekning og hef ég ekki náð að koma til Íslands síðan í júní – með þeim afleiðingum að það er ekki bara einn Lubbi á heimilinu – heldur einn Lubbi og ein með lubba.
En við höfum verið svo heppin að þrátt fyrir að við höfum ekki náð að fara til Íslands, þá hefur Ísland sannarlega náð að koma til okkar því vinir okkar og fjölskyldur hafa verið dugleg að heimsækja okkur, átt með okkur dýrmætar gæðastundir og þannig slegið á söknuðinn. Við höfum ekki lengur tölu á fjöldanum sem rennur í gegn hjá okkur ýmist í mat eða gistingu og er frábært að ná að hitta okkar besta fólk hér.
Í síðustu viku gerðist svo það að kvennaleynifélag sem ég á aðild að lagði land undir fót og hélt upp á 20 ára afmæli félagsins með ferð til Parísar. Þetta er félagsskapur sem leggur mikið bæði í fræðslu og skemmtilegheit í ferðum sínum og úr varð að ég tók að mér að skipuleggja viðburð í OECD – Efnahags- og framfarastofnuninni – þar sem ég starfa. Fundurinn, sem hafði á dagskránni háttsetta sérfræðinga frá OECD, sendiherra gagnvart stofnuninni og íslenska sérfræðinga úr hópnum, fjallaði um stöðu alþjóða- og efnahagsmála í heiminum með áherslu á hvernig Ísland getur sem best nýtt sér OECD-aðild og aðra alþjóðasamninga til þess að ná sem bestum árangri. Enn fremur var sérstök áhersla lögð á að rýna nýútkomnar PISA-niðurstöður við helsta sérfræðing OECD – sem ég kalla einfaldlega „Herra PISA“ – bæði almennt en auðvitað sérstaklega með tilliti til útkomu Íslands og rætt hvaða leiðir Ísland hefði til að snúa við þeirri alvarlegu þróun sem þar birtist. Þó ég segi sjálf frá heppnaðist fundurinn frábærlega og bæði íslensku gestirnir og aðrir ræðumenn lýstu ánægju sinni með þá athyglisverðu og gagnlegu umræður sem þarna fór fram.
En það sem meira var, þá held ég að þarna hafi verið sett OECD met í fjölda Íslendinga sem hafa verið í aðalstöðvum stofnunarinnar á sama tíma – 107 íslenskar konur – og ekki síður mikilvægt er að þarna voru 107 íslenskar áhrifakonur með sterkar skoðanir. Þegar ég var, ásamt teyminu mínu, að undirbúa fundinn og reyna að lýsa þessum góða félagsskap bað ég þær að ímynda sér fullan sal af Röggum – 107 Röggur á einum stað! Ég er ekki frá því að þeim hafi brugðið dáldið við og ekki litist á blikuna!
En OECD stóð þetta af sér og heimsóknin verður sannarlega lengi í minnum höfð.









