Kadeco
Kadeco

Fréttir

Tugþúsundir fermetra og yfir þúsund störf á framkvæmdatíma
Laugardagur 10. október 2026 kl. 03:05

Tugþúsundir fermetra og yfir þúsund störf á framkvæmdatíma

Risastækkun hjá Verne á Ásbrú

Gagnaverið Verne á Ásbrú stendur fyrir stórfelldri stækkun á næstu árum, en hefja á jarðframkvæmdir á svæðinu á næstu vikum. Styrmir Hafliðason, forstjóri Verne, kynnti þetta umfangsmikla verkefni í pallborðsumræðum á Atvinnu- og framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar. Gagnaverið, sem hefur starfað í 15 ár á svæðinu, hyggst reisa rúmlega 20.000 fermetra byggingu sem er miðuð við allt að 120 megavatta raforkuþörf.

Áætlað er að allt að 1.280 störf skapist á hápunkti framkvæmda, en áætluð lok á fyrsta fasa verkefnisins eru á fyrsta ársfjórðungi 2028. Beinum störfum hjá Verne á Íslandi mun fjölga úr tæplega 50 í um 120 þegar verkefninu lýkur, auk þess sem gert er ráð fyrir að afleidd störf í nærsamfélaginu verði á bilinu 300 til 600.

Umsvifin á Suðurnesjum eru gríðarleg, en á opnum kynningarfundi um verkefnið mættu yfir 250 manns frá 115 ólíkum fyrirtækjum í íslenskum iðnaði. Styrmir sagði mikinn hug og spennu vera fyrir framkvæmdunum og undirstrikaði að Verne ætti dýpri rætur í Reykjanesbæ og liti björtum augum til áframhaldandi uppbyggingar á Ásbrú.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn
Bílakjarninn