Margrét í U17 ára landsliðið
Margrét Viktoría Harðardóttir, leikmaður Keflavíkur, hefur verið valin í U17 ára landslið kvenna sem tekur þátt í undankeppni EM í Þýskalandi dagana 8.–16. október. Liðið kemur saman til æfinga hér heima 6. og 7. október áður en haldið verður til Þýskalands.
Margrét Viktoría var í stóru hlutverki með Keflavík í sumar. Hún varmeð í sextán viðureignum af átján og skorað eitt mark.
Keflvíkingar enduðu í 8. sæti af tíu liðum með 21 stig.








