Kadeco
Kadeco

Fréttir

Reykjanesbær undir landsmeðaltali á öllum sviðum PISA
Fimmtudagur 8. október 2026 kl. 11:28

Reykjanesbær undir landsmeðaltali á öllum sviðum PISA

Nemendur í Reykjanesbæ eru undir landsmeðaltali í vísindum, stærðfræðilæsi og lesskilningi samkvæmt nýrri greiningu á niðurstöðum PISA 2025. Munurinn minnkar þegar tekið er tillit til bakgrunns nemenda en hverfur ekki.

Mennta- og barnamálaráðuneytið birti greininguna 8. október. Þar er árangur nemenda í sjö fjölmennustu sveitarfélögum landsins borinn saman við landsmeðaltal.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Reykjanesbær er eina sveitarfélagið í hópnum sem mælist undir landsmeðaltali á öllum þremur sviðum eftir leiðréttingu fyrir félags- og efnahagslegri stöðu og erlendum bakgrunni nemenda. Í greiningunni kemur fram að hlutfall nemenda með innflytjendabakgrunn sé hæst í Reykjanesbæ meðal sveitarfélaganna sjö og félags- og efnahagsleg staða þeirra lægst að jafnaði.

Lesskilningur sker sig úr

Áður en leiðrétt er fyrir bakgrunni er hlutfall nemenda í Reykjanesbæ sem nær grunnhæfni undir landsmeðaltali á öllum þremur sviðum. Eftir leiðréttingu er sá munur aðeins tölfræðilega marktækur í lesskilningi.

Þótt samsetning nemendahópsins skýri þannig hluta munarins stendur Reykjanesbær áfram verr að vígi í hlutfalli nemenda sem nær grunnhæfni í lesskilningi.

Ráðuneytið leggur áherslu á að leiðréttar niðurstöður segi ekki einar og sér til um gæði skólastarfs. Niðurstöður eru ekki birtar fyrir einstaka grunnskóla þar sem rannsóknin veitir ekki nægilega áreiðanlegar upplýsingar um svo litla nemendahópa.

Bílakjarninn
Bílakjarninn