Berglind tekur við Fimleikadeild Keflavík
Berglind Ragnarsdóttir tók við starfi framkvæmdastjóra Fimleikadeildar Keflavíkur þann 1. október síðastliðinn. Hún þekkir starf deildarinnar vel en undanfarin ár hefur hún setið í stjórn hennar, meðal annars sem varaformaður, og komið að fjölmörgum verkefnum tengdum rekstri, stefnumótun og uppbyggingu deildarinnar.
Fimleikadeild Keflavíkur hefur vaxið mikið á undanförnum árum og starfsemin er orðin bæði umfangsmikil og fjölbreytt. Í dag býður deildin upp á hópfimleika, áhaldafimleika, almenna fimleika, parkour, starf fyrir yngstu iðkendurna, fullorðna og eldri borgara auk ýmissa þróunar- og inngildingarverkefna.
„Ég þekki deildina auðvitað vel eftir að hafa setið sem varaformaður í stjórn í fjögur ár, en það er allt annað að stíga inn í daglegan rekstur. Ég hlakka mjög mikið til verkefnisins. Hér er ótrúlega öflugt starfsfólk, stór hópur þjálfara og sjálfboðaliða og fyrst og fremst gríðarlega metnaðarfullt starf fyrir iðkendurna okkar,“ segir Berglind.
Eitt mikilvægasta verkefnið fram undan verður að styrkja enn frekar umgjörðina utan um ört vaxandi starfsemi. Áhersla verður lögð á skýrari verkferla og ábyrgð, gott upplýsingaflæði og að skapa starfsfólki og þjálfurum sterkt umhverfi til að sinna sínu faglega starfi.
„Þegar starfsemi verður svona umfangsmikil er ekki lengur hægt að treysta endalaust á reddingar og að einhver taki verkefni að sér í sjálfboðavinnu eins og raunin hefur verið hjá fimleikadeildinni. Markmiðið mitt er að byggja upp faglega og skýra umgjörð utan um starfið án þess að missa það sem gerir félagið sérstakt – gleðina, samheldnina og kraftinn sem fylgir íþróttastarfi.“
Aðstöðumálin stærsta verkefnið
Aðstöðumál verða áfram eitt stærsta verkefni deildarinnar. Núverandi aðstaða í Íþróttaakademíunni er mikið nýtt og eftirspurn eftir tímum og fjölbreyttara starfi hefur aukist. Samhliða því hefur deildin unnið að frekari uppbyggingu á Ásbrú þar sem áhersla er lögð á að skapa fleiri og fjölbreyttari leiðir fyrir börn og ungmenni inn í íþróttastarf.
„Ég hef mjög mikinn áhuga á því hvernig íþróttafélög geta náð til fleiri barna og í mínum huga er það að reka íþróttadeild eins konar samfélagsþjónusta. Það eiga ekki öll börn að þurfa að passa inn í sama mótið. Við þurfum líka að búa til starf sem hentar ólíkum áhuga, getu og þörfum. Parkour, starf á Ásbrú og verkefni fyrir börn með ólíkar stuðningsþarfir eru dæmi um það sem mig langar að halda áfram að byggja upp.“
Berglind er iðnaðar- og nýsköpunarverkfræðingur að mennt og hefur starfað við verkefna- og vörustjórnun, stafræna þróun, innleiðingu og breytingastjórnun hjá bæði opinberum aðilum og einkafyrirtækjum.
Hún segir þó að nýja starfið sameini á margan hátt það sem hafi lengi verið henni hugleikið.
„Þarna koma saman stjórnun, þróunarstarf, samfélagið mitt og íþróttastarf sem mér hefur þótt ótrúlega vænt um í mörg ár. Ég er því bæði spennt og meðvituð um að verkefnin fram undan eru stór og sum ansi krefjandi. En hér eru líka mikil tækifæri.“
Árangur ekki bara medlíur
Gildi Fimleikadeildar Keflavíkur eru gleði, ástríða og árangur og segir Berglind þau vera góðan leiðarvísi fyrir næstu skref.
„Árangur er nefnilega ekki bara medalíur. Árangur getur líka verið barn sem finnur loksins íþrótt sem það elskar, þjálfari sem fær að vaxa í starfi eða félag sem tekst að byggja upp umhverfi þar sem fólk vill vera. Það er samfélagið sem við viljum halda áfram að byggja.“








