KR stakk Grindavík af í seinni hálfleik og vann Meistarakeppnina
Bikarmeistarar KR unnu öruggan 106-79 sigur á Íslandsmeisturum Grindavíkur í árlegum upphafsleik körfuboltatímabilsins, í Meistarakeppni karla í körfubolta í Grindavík í gærkvöldi. Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik en KR-ingar tóku öll völd eftir hlé og lögðu grunninn að sigrinum með frábærum þriðja leikhluta.
KR byrjaði betur og var fimm stigum yfir eftir fyrsta leikhluta, 22-17. Grindvíkingar svöruðu í öðrum leikhluta, skoruðu 27 stig gegn 25 og því munaði aðeins þremur stigum í hálfleik, 47-44 fyrir KR.
Eftir hlé skildu leiðir. KR-ingar settu mikinn kraft í leik sinn, unnu þriðja leikhlutann 31-12 og fóru með 22 stiga forskot, 78-56, inn í lokaleikhlutann. Grindavík náði ekki að ógna forskotinu eftir það og KR bætti heldur í áður en yfir lauk. Lokatölur urðu 106-79.
Roberts Berzins og Friðrik Anton Jónsson voru stigahæstir KR-inga með 21 stig hvor, en Friðrik tók einnig fimm fráköst. Linards Jaunzems skoraði 17 stig og Þorvaldur Orri Árnason var með 13 stig og sex fráköst.
Mirza Bulic, besti leikmaður Keflavíkur á síðustu leiktíð, var atkvæðamestur Íslandsmeistaranna með 20 stig og heil 16 fráköst. Valur Orri Valsson og Arnór Tristan Helgason skoruðu 17 stig hvor og Nökkvi Már Nökkvason bætti við tíu stigum.
Grindavík-KR 79-106 (17-22, 27-25, 12-31, 23-28).
Grindavík: Mirza Bulic 20/16 fráköst, Valur Orri Valsson 17, Arnór Tristan Helgason 17, Nökkvi Már Nökkvason 10, Kristófer Breki Gylfason 6/5 fráköst, Ragnar Örn Bragason 6, Ragnar Guðmundsson 3, Albert Þorleifsson 0, Patrekur Atlason 0, Jason Helgi Ragnarsson 0.
KR: Roberts Berzins 21, Friðrik Anton Jónsson 21/5 fráköst, Linards Jaunzems 17/4 fráköst, Þorvaldur Orri Árnason 13/6 fráköst, Adam Ramstedt 9/9 fráköst, Lars Erik Bragason 9/5 fráköst/6 stoðsendingar, Reynir Bjarkan Barðdal Róbertsson 7/5 fráköst/5 stoðsendingar, Hallgrímur Árni Þrastarson 3, Sturla Böðvarsson 3, Rafail Lanaras 3/5 fráköst/8 stoðsendingar, Þórir Guðmundur Þorbjarnarson 0, Finnur Tómasson 0.








