Markalaust jafntefli – tvö mörk Grindavíkur/Njarðvíkur dæmd af
Stjarnan og Grindavík/Njarðvík gerðu markalaust jafntefli í efri hluta Bestu deildar kvenna á Samsungvellinum í kvöld.
Leikurinn var rólegur en tvö mörk Grindavíkur/Njarðvíkur eftir hornspyrnur voru dæmd af. Það fyrra kom strax á 2. mínútu og það síðara á 60. mínútu.
Um 50 áhorfendur fylgdust með leiknum í björtu veðri og átta stiga hita, segir í leiklýsingu á fotbolti.net







