Reykjanesbær heldur aftur af gjaldskrárhækkunum
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur einróma samþykkt að taka undir ályktun Sambands íslenskra sveitarfélaga um að sveitarfélög leggi sitt af mörkum í baráttunni við verðbólgu með því að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% á árinu 2027.
„Við viljum einfaldlega standa með fólkinu í bænum. Fjölskyldur finna fyrir háu vaxtastigi, verðbólgu og auknum kostnaði og þá skiptir máli að hið opinbera bæti ekki enn frekar í byrðarnar. Við höfum þegar lækkað kostnað við uppbyggingu með því að fella niður innviðagjöld og nú ætlum við að halda aftur af hækkunum á gjaldskrám. Núna er boltinn hjá ríkinu en ríkisstjórnin þarf að falla frá þeim miklu gjaldskrár- og álöguhækkunum sem boðaðar eru fyrir árið 2027. Það næst enginn árangur í baráttunni við verðbólguna ef einn aðili stígur á bremsuna á meðan annar stígur á bensínið,“ segir Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, í tilkynningu.
Í sameiginlegri bókun bæjarstjórnar kemur fram að mikilvægt sé að sveitarfélög, ríki og aðilar vinnumarkaðarins taki höndum saman um að draga úr verðbólguþrýstingi, stuðla að lækkun vaxta og verja kaupmátt heimilanna. Slíkt sameiginlegt átak krefjist þess að allir aðilar leggi sitt af mörkum og sýni ábyrgð og hófsemi.
Reykjanesbær mun því stefna að því að takmarka hækkanir almennra gjaldskráa bæjarsjóðs við 2,5% á næsta ári þrátt fyrir kostnaðarhækkanir í rekstri sveitarfélagsins.
Jafnframt hvetur bæjarstjórn ríkið, stofnanir þess og atvinnulífið til að leggja sitt af mörkum með sambærilegu aðhaldi gagnvart gjaldskrám, álögum og verðhækkunum sem hafa bein áhrif á heimilin.
Innviðagjöld þegar felld niður
Reykjanesbær hefur þegar ráðist í aðgerðir sem miða að því að lækka kostnað við uppbyggingu og greiða fyrir auknu framboði húsnæðis.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur þegar samþykkt að fella niður innviðagjöld sveitarfélagsins og færa þau niður í 0 krónur á fermetra í öllum flokkum. Áður hafði gjaldið numið 35.000 krónum á fermetra vegna íbúðarhúsnæðis og 6.000 krónum á fermetra vegna iðnaðarbyggðar, verslunar og þjónustu og athafnasvæða.
Með niðurfellingu innviðagjalda og aðhaldi að almennum gjaldskrám er Reykjanesbær að leggja sitt af mörkum til þess sameiginlega markmiðs að draga úr verðbólguþrýstingi, lækka kostnað við uppbyggingu og verja kaupmátt heimilanna, segir í tilkynningu frá Reykjanesbæ.






