Miðflokkurinn segir engan nýjan meirihluta hafa verið myndaðan á laugardagsfundi
Miðflokkurinn í Suðurnesjabæ segir að enginn nýr meirihluti hafi verið myndaður á fundi bæjarfulltrúa síðastliðinn laugardag og að engir samningar hafi verið gerðir um meirihlutasamstarf. Flokkurinn telur jafnframt ekki tilefni til bæjarstjóraskipta og segir núverandi bæjarstjóra hafa sinnt starfi sínu vel og af heilindum.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Miðflokknum vegna umræðu síðustu daga um stöðu meirihlutasamstarfs í sveitarfélaginu og fundi kjörinna fulltrúa. Þar segir að ágreiningur hafi verið innan bæjarstjórnar um staðsetningu gervigrasvallar og að fulltrúar flokksins hafi tekið þátt í viðræðum við aðra bæjarfulltrúa í leit að samstöðu um málið.
Samkvæmt yfirlýsingunni voru fulltrúar Miðflokksins boðaðir á sérstakan fund á laugardag þar sem kannað var hvort grundvöllur væri fyrir myndun nýs meirihluta. Fundurinn hafi farið fram áður en tilkynnt var um slit þáverandi meirihlutasamstarfs.
Flokkurinn segir fulltrúa sína hafa tekið skýrt fram að þeir hefðu ekki umboð til að ákveða þátttöku í nýju meirihlutasamstarfi án samráðs við baklandið. Engin slík ákvörðun hafi verið tekin á fundinum.
„Um var að ræða samtöl og skoðanaskipti, ekkert annað,“ segir í yfirlýsingunni.
Á fundinum hafi einnig komið fram hugmynd um bæjarstjóraskipti. Miðflokkurinn segist hvorki hafa átt frumkvæði að henni né lýst stuðningi við hana. Fulltrúar flokksins hafi bent á að sveitarfélagið væri þegar með tvo bæjarstjóra á launum og spurt hvort réttlætanlegt væri að bæta við kostnaði vegna þess þriðja.
Í yfirlýsingunni leggur flokkurinn áherslu á að ákvarðanir um meirihlutasamstarf verði aðeins teknar eftir samráð innan flokksins og við bakland hans. Þátttaka í samtölum við aðra kjörna fulltrúa feli hvorki í sér samþykki við hugmyndum sem þar komi fram né skuldbindingu um samstarf.
Miðflokkurinn segir málefni, ábyrga stjórnsýslu og hagsmuni íbúa eiga að ráða för við ákvarðanir um framtíð sveitarfélagsins. Gervigrasvöllurinn sé mikilvægt mál fyrir börn og ungmenni, en atburðir síðustu daga sýni einnig mikilvægi trausts, heilinda og gagnkvæmrar virðingar meðal þeirra sem stjórni sveitarfélaginu.







