Björguðu breskum rannsóknardróna langt suðaustur af Grindavík
Áhöfn björgunarskipsins Odds V. Gíslasonar bjargaði ómönnuðum breskum rannsóknarbát um 75 sjómílur suðaustur af Grindavík í gær. Sveitin er komin til hafnar með tækið, sem hafði orðið fyrir tjóni og gat ekki haldið leið sinni áfram.
Samkvæmt færslu Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar hafði breskt tæknifyrirtæki samband við sveitina nokkrum dögum áður og kannaði hvort hægt væri að sækja rannsóknarbátinn.
Eftir að hafa farið yfir sjólag og veðurspá um helgina var ákveðið að leggja af stað klukkan fjögur í gærmorgun. Blíðskaparveður var á svæðinu og tókst áhöfninni að finna og bjarga tækinu rétt fyrir klukkan ellefu um morguninn. Við brottför var áætlað að ferðin gæti tekið allt að 16 klukkustundir.
Rannsóknarbáturinn er lítill og að sögn sveitarinnar ekki auðfundinn á hafi úti. Í færslunni segir að verkefnið hafi verið góð æfing í leit og björgun á sjó, auk þess að vera góð fjáröflun fyrir sveitina og björgunarskipið.
Oddur V. Gíslason fagnar 41 árs afmæli á þessu ári.









