Haustfundur Samfylkingarinnar í Sandgerði um helgina
Samfylkingin heldur haustfund flokksstjórnar í Samkomuhúsinu í Sandgerði í Suðurnesjabæ laugardaginn 10. október. Fundurinn hefst klukkan 12:30 og er opinn flokksfólki og öðrum sem hafa áhuga á að kynna sér starf flokksins.
Svavar Grétarsson, oddviti Samfylkingarinnar í Suðurnesjabæ, býður gesti velkomna áður en Guðmundur Árni Stefánsson varaformaður setur fundinn. Kristrún Frostadóttir, formaður flokksins og forsætisráðherra, flytur síðan ræðu. Í framhaldinu ræða ráðherrar Samfylkingarinnar árangur ríkisstjórnarinnar til þessa og áherslur fram undan. Þá sitja þingmenn flokksins fyrir svörum fundargesta.
Val á nýjum varaformanni verður meðal helstu verkefna fundarins. Guðmundur Árni Stefánsson óskaði fyrr á árinu eftir að láta af embættinu og mun nýr varaformaður gegna því fram að landsfundi næsta vor. Samkvæmt fundarboðinu hefur Guðmundur Ari Sigurjónsson einn gefið kost á sér en framboðsfrestur rennur út klukkan 14 á laugardag. Verði aðeins einn í framboði verður hann sjálfkjörinn.
Sveitarstjórnarmál verða einnig til umræðu. Oddvitar Samfylkingarinnar í Hveragerði, Norðurþingi og á Skagaströnd segja frá störfum sínum í meirihlutasamstarfi. Þá verður málefnastarf vetrarins kynnt og rætt um undirbúning fyrir næstu alþingiskosningar.
Fyrr um daginn stendur Verkalýðsmálaráð Samfylkingarinnar fyrir fundi um stöðuna á vinnumarkaði á Park Inn by Radisson-hótelinu í Reykjanesbæ. Sá fundur hefst klukkan 10:30 og þar taka til máls Finnbjörn Hermannsson forseti ASÍ, Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Stefán Ólafsson prófessor emeritus.







