Safnahelgi
Safnahelgi

Fréttir

Verri rekstur hjá Reykjanesbæ á þessu ári
Ný bæjarstjórn Reykjanesbæjar 2026. VF/pket.
Miðvikudagur 7. október 2026 kl. 14:50

Verri rekstur hjá Reykjanesbæ á þessu ári

Árshlutauppgjör Reykjanesbæjar sýnir að rekstrarniðurstaða fyrstu sex mánaða ársins var neikvæð um tæplega 103 milljónir króna, þrátt fyrir að fjárhagsáætlun hafi gert ráð fyrir rúmlega 93 milljóna króna jákvæðri rekstrarniðurstöðu. Raunveruleg staða undirliggjandi rekstrar bæjarsjóðs er þó enn alvarlegri, segir í bókun frá meirihluta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar.

Þar segir einnig: 

„Á tímabilinu féllu til 366 milljónir króna í óáætlaðar einskiptistekjur vegna HS Veitna. Án þeirra hefði rekstur bæjarsjóðs verið neikvæður um 469 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Þessar einskiptistekjur falla ekki til að nýju á síðari hluta ársins. Sú staðreynd að reksturinn skilar engu að síður 103 milljóna króna tapi á fyrri árshelmingi, þrátt fyrir 366 milljóna króna óáætlaðar tekjur, gefur sterka vísbendingu um verulegt misræmi milli fjárhagsáætlunar og raunverulegs rekstrar. Það vekur spurningar um forsendur fjárhagsáætlunar ársins og bendir til þess að, verði ekkert aðhafst, geti verulegur rekstrarhalli myndast á síðari hluta ársins.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Þróun rekstrarniðurstöðu A-hluta undanfarin ár segir sína sögu. Rekstrarniðurstaðan var jákvæð um 1.453 milljónir króna árið 2023, 1.113 milljónir króna árið 2024, 440 milljónir króna árið 2025 og fjárhagsáætlun fyrir hálfsársuppgjörið gerði ráð fyrir 93 milljóna króna jákvæðri niðurstöðu árið 2026. Nú stefnir í rekstrartap á þessu ári verði ekki gripið til aðgerða. Þessi þróun verður ekki skýrð sem einstakt frávik eða tímabundinn vandi. Tölurnar sýna þvert á móti að rekstrarafkoma sveitarfélagsins hefur versnað hratt ár frá ári vegna lausataka í fjármálastjórninni. Núverandi meirihluti stendur því frammi fyrir því verkefni að snúa þessari þróun við og koma rekstri sveitarfélagsins aftur á traustan og sjálfbæran grundvöll.

Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir er tæplega 27% undir áætlun ársins, eða sem nemur rúmlega 440 milljónum króna. Þar munar mest um frávik vegna vöru- og þjónustukaupa. Fjármagnskostnaður var jafnframt um 20% hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir, þar sem hærra vaxtastig og verðbólga vega þungt.

Það er áhyggjuefni að rekstrarniðurstaðan sé neikvæð og undir áætlun. Niðurstaðan undirstrikar mikilvægi þeirrar vinnu sem núverandi meirihluti hefur þegar hrundið af stað til að styrkja rekstur og fjármálastjórn sveitarfélagsins. Þar má meðal annars nefna stofnun umbóta- og hagræðingarteymis og breytta aðferðafræði við fjárhagsáætlunargerð, þar sem aukin áhersla er lögð á núllgrunnsnálgun í stað hefðbundinnar úthlutunar fjárhagsramma til einstakra sviða.

Nú stendur yfir umfangsmikil vinna við gerð fjárhagsáætlunar þar sem hvert svið þarf að greina helstu áskoranir í rekstri og kortleggja hvar tækifæri liggja til úrbóta, einföldunar og hagræðingar. Jafnframt er lögð áhersla á breytingar sem geta stuðlað að betri nýtingu fjármuna, aukinni skilvirkni og áframhaldandi öflugri þjónustu við íbúa.

Markmiðið með þessari vinnu er að bæta áætlunargerð sveitarfélagsins, auka fyrirsjáanleika í rekstri og skapa þannig traustari grundvöll fyrir upplýsta og markvissa ákvarðanatöku.

Núverandi meirihluti hefur þegar stigið skref til að bregðast við þeirri stöðu og vill leggja sitt af mörkum til að draga úr verðbólguþrýstingi. Meðal þeirra aðgerða er lækkun byggingarréttargjalda niður í 0 krónur. Með þeirri ákvörðun vill Reykjanesbær ryðja brautina og hvetja önnur sveitarfélög til að skoða sambærilegar aðgerðir. Jafnframt tekur bæjarstjórn undir ályktun Sambands íslenskra sveitarfélaga um að halda hækkunum almennra gjaldskráa sveitarfélaga innan 2,5% á árinu 2027. Reykjanesbær mun því stefna að því að takmarka hækkanir almennra gjaldskráa bæjarsjóðs við 2,5%.

Það er mikilvægt að hafa í huga að hér er um langhlaup að ræða. Verkefnið krefst þess að við vinnum saman að því að styrkja rekstur sveitarfélagsins til framtíðar. Við sem stöndum að núverandi meirihluta skorumst ekki undan þeirri ábyrgð sem felst í því að taka nauðsynlegar ákvarðanir, jafnvel þegar þær eru krefjandi. Við tökum við ósjálfbærum rekstri bæjarsjóðs en markmiðið er skýrt: að tryggja traustan og sjálfbæran rekstur Reykjanesbæjar og skapa öflugt samfélag sem þjónar íbúum og fyrirtækjum til framtíðar,“ segir í bókuninni.

Bílakjarninn
Bílakjarninn