Kadeco
Kadeco

Pistlar

Ríkissjóður græðir feitt á fiskflutningum
Páll Jónsson GK. Ljósmynd: Reynir Sveinsson
Gísli Reynisson
Gísli Reynisson skrifar
föstudaginn 2. október 2026 kl. 20:31

Ríkissjóður græðir feitt á fiskflutningum

Þá er septembermánuður kominn á enda og þar með er nýju fiskveiðiári lokið. Heilt yfir þá var svo sem ágætt um að vera þó svo að flestir línubátanna hafi verið á veiðum fyrir austan og norðan.

Nesfiskstogarnir voru báðir á rækjuveiðum fyrir norðan og lönduðu á Siglufirði. Sóley Sigurjóns GK landaði 266 tonnum í fjórum löndunum, og reyndar var síðasta löndun togarans í Hafnarfirði og er þar með Sóley Sigurjóns GK hætt á rækjuveiðum.

Pálína Þórunn GK landaði líka á Siglufirði alls 100 tonnum í þremur löndunum og síðasta löndunin var líka í Hafnarfirði. Er þá líka Pálína Þórunn GK hætt á rækjuveiðum? Og fyrst hún er komin suður þá fer nú örugglega að styttast í það að Pálína Þórunn GK komi í heimahöfn sína Sandgerði.

Haustdagar
Haustdagar

Í Grindavík hefur Hulda Björnsdóttir GK landað 313 tonnum í tveimur löndunum og kom síðan til Neskaupstaðar með 144 tonn og svo til Hafnarfjarðar með 181 tonn. Bylgja VE er búin að vera á veiðum við Eldey og þar í kring og kom með eina löndun til Grindavíkur en þar landaði togarinn 69 tonnum í einni löndun. Áskell ÞH og Vörður ÞH hafa ekki landað neinu í Grindavík í september.

Stóru línubátarnir tveir hafa skipst á að landa á Djúpavogi og í Grindavík. Sighvatur GK hefur landað í Grindavík 227 tonnum og á Djúpavogi 224 tonnum, en aflanum sem er landað þar er að mestum hluta ekið til vinnslu í Grindavík.

Páll Jónsson GK hefur landað 217 tonnum í Grindavík og 265 tonnum á Djúpavogi. Þetta eru töluverðir flutningar með fisk af þessum tveimur bátum, því til dæmis í síðustu löndun Páls á Djúpavogi þá voru 125 tonn af fiski ekin til Grindavíkur og þessi afli fer í fimm flutningabíla.

Á milli Djúpavogs og Grindavíkur eru 566 kílómetrar og þetta eru því alls 1132 kílómetrar á trukk, og í heildina 5660 kílómetrar á þessa fimm trukka sem þarf til þess að sækja aflann.

Kílómetragjald á trukkana er 45 krónur á kílómetrann og samtals er því kílómetragjaldið sem þarf að greiða fyrir þessa flutninga tæplega 256 þúsund krónur. Reyndar er gefinn 40% afsláttur af gjaldi eftirvagna árið 2026, en sá afsláttur lækkar í 20% árið 2027.

Ég ætla ekki einu sinni að spá í olíukostnaði við þessa flutninga, en ríkissjóður er allavega að græða feitt á þessum fiskflutningum og miðað við nýjar tillögur frá þessum trúðum á Alþingi þá munu þessar tekjur aukast því stefnt er að því að hækka gjaldið um 15,9% sem þýðir þá að gjaldið á stóru trukkana fer í um 52 krónur á kílómeterinn, og það þýðir að þessir fiskflutningar frá Djúpavogi fari í 294 þúsund krónur miðað við þessa 5660 kílómetra. En það má geta þess að Jón og Margeir í Grindavík sjá um að aka fiskinum fyrir bátana tvo sem eru gerðir út af Vísi.

Í síðasta pistli skrifaði ég um innbrotið í Dímon GK sem lá við bryggju í Grófinni, en Bjössi lét innbrotið og skemmdirnar sem unnar voru á bátnum stöðva sig, því að hann fékk nýjar DNG-vindur, nýja hurð í brúnna á bátnum og bætti svo við eftirlitsmyndavél. Það er gaman að geta þess að sama dag og þessi pistill er skrifaður þá fór Bjössi í sinn fyrsta róður, í Röstina, en töluvert mikill straumur var þar og erfitt fyrir bátana að vera því rekið þar var töluvert, og fyrsti róður Bjössa gekk þokkalega miðað við erfiðar aðstæður, hann var með 300 kíló af ufsa og karfa

Bílakjarninn
Bílakjarninn