Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi
Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi

Pistlar

Uppvakningar
Laugardagur 24. október 2026 kl. 05:28

Uppvakningar

Uppvakningar eru undarleg fyrirbrigði sem fylgt hafa mannkyninu í aldaraðir og hægt er að rekja til þjóðsagna frá Haíti. Galdralæknar eru sagðir geta vakið upp fólk frá dauðum og stjórnað því eins og viljalausum þrælum og fengið það til að gera nánast hvað sem er. Stundum er þeim stjórnað með einföldu flauti: eitt flaut, beygja til vinstri, tvö flaut, beygja til hægri o.s.frv. Þetta eru sem sagt algjörlega viljalausar verur sem gera eins og þeim er sagt.

Ég fór sem sagt að hugsa um uppvakninga þegar við hjónin keyrðum niður Evrópu nýlega. Hvar sem maður fór um virtist eitt helsta persónueinkenni fólks vera að það laut höfði og horfði í farsíma sína. Algjörlega ótengt umhverfi sínu en mænandi á símann í leit að næstu skipun alnetsins. Svolítið eins og uppvakningar. Tæknin sem gera átti líf okkar auðveldara er farin að gera lífið á margan hátt svolítið snúnara.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Við verðum stöðugt háðari alls konar öppum og lykilorðum. Auðvitað eru öpp og lykilorð að langmestu leyti af hinu góða, við verðum öruggari með aðgerðir okkar á netinu. En samt, fyrir marga þá sem eldri eru, er þetta ekki alltaf alveg svona einfalt.

Við hjónin erum til að mynda mjög samrýmd. Notum eina tölvu og einn Ipad. Skynseminnar vegna höfum við notast við hennar einkenni þegar kemur að aðgengi að hvort heldur Ipadnum eða tölvunni. Hún man betur en ég og hefur stjórn á hlutunum. En þetta er ekki skynsamlegt. Því komst ég að um daginn.

Frúin hafði sem sagt brugðið sér frá stutta stund, rétt áður en að fékk þá hugmynd að skrifa einhvern stórmerkilegan texta sem mér hafði dottið í hug. Ekki seinna heldur núna. Settist með Ipadinn, brosandi og hugðist slá inn eina lykilorðið sem ég mundi, en nei ó nei, Ipadinn bað um fingrafar, ekki mitt heldur hennar. Var bara slakur og hugðist fara í tölvuna en sama saga þar, lykilorðið mitt virkaði ekki, en beðið um augnauðkenningu frúarinnar. Blóðþrýstingurinn, sem er of hár, hækkaði meira.

Hvers á ég eiginlega að gjalda og hvers konar misþyrmingar er eiginlega verið að biðja um? Ímyndar alnetið sér virkilega að maður sé orðinn svo mikill viljalaus uppvakningur að með fjórum flautum geti það beðið mann um að plokka úr öðrum augunum og skera í burtu putta til að geta skrifað einfaldan texta? Nei, mér sýnist þróun alnets og gervigreindar vera á stórhættulegri leið.

Bílakjarninn
Bílakjarninn