Íþróttir

Rúnar fékk gull og Hjördís silfur á 30 ára afmælisfundi ÍRB
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 23. október 2026 kl. 05:38

Rúnar fékk gull og Hjördís silfur á 30 ára afmælisfundi ÍRB

Árlegur formannafundur Íþróttabandalags Reykjanesbæjar fór fram nýlega en bandalagið fagnar 30 ára afmæli um þessar undir en það var stofnað 29. maí 1996. Á formannafundi koma saman allir formenn aðildarfélaga ÍRB ásamt stjórn ÍRB. 

Þar sem um var að ræða tímamótafund var mikið um góða gesti þar á meðal fulltrúa frá ÍSÍ, UMFÍ, bæjarstjórn Reykjanesbæjar, íþrótta- og tómstundaráð Reykjanesbæjar og fyrrverandi formenn ÍRB. Fyrsti formaður var Hjálmar Árnason og á eftir honum fylgdu Ólafur Thordersen, Jóhann B. Magnússon, Ingigerður Sæmundsdóttir, Guðbergur Reynisson og núverandi formaður er Rúnar V. Arnarson. 

Yfir 50 gestir mættu og mikill hugur í fundargestum að efla íþróttastarf í Reykjanesbæ enn frekar. Meðal ræðumanna voru Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Jóhann Steinar Ingimundarson formaður UMFÍ og Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ. Í framhaldi af ræðu forseta ÍSÍ veitti Willum Þór tveimur núverandi stjórnarmönnum ÍRB viðurkenningu fyrir áratuga sjálfboðaliðastörf fyrir íþróttahreyfinguna. Hjördísi Baldursdóttur gjaldkera ÍRB var veitt silfurmerki ÍSÍ og Rúnari V. Arnarsyni formanni ÍRB var veitt gullmerki ÍSÍ.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk
Bílakjarninn
Bílakjarninn