Hviða
Hviða

Íþróttir

Yfirburðir hjá Njarðvíkurkonum - stórleikur í Grindavík í kvöld
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 21. október 2026 kl. 10:18

Yfirburðir hjá Njarðvíkurkonum - stórleikur í Grindavík í kvöld

Njarðvíkurkonur yfirspiluðu Fjölni í leik liðanna í Bónus-deildinni í körfubolta í gærkvöldi. Lokatölur urðu 108-55 í Icemar höllinni í Njarðvík. Í kvöld er stórleikur í Grindavík þegar efsta liðið fær Keflavík í heimsókn.

Leikur Njarðvíkur og Fjölni var ójafn og ljóst að þetta verður erfitt tímabil fyrir nýliðana. Njarðvíkingar unnu fyrsta leikhlutann 30-13 og héldu áfram næstu leikhluta að sýna yfirburði. Þegar yfir stóð var munurinn fimmtíu og þrjú stig.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Stigaskorið skiptist vel á milli leikmanna UMFN og skoruðu allar stig.

Njarðvík-Fjölnir 108-55 (30-13, 28-9, 25-17, 25-16)

Njarðvík: Brittany Dinkins 17/5 fráköst/5 stoðsendingar, Emma Grace Theódórsson 16/10 fráköst, Sara Björk Logadóttir 13, Hulda María Agnarsdóttir 11, Helena Rafnsdóttir 10, Dagbjort Dora Kristmannsdottir 10, Ásta Júlía Grímsdóttir 10/11 fráköst, Krista Gló Magnúsdóttir 9, Kristín Björk Guðjónsdóttir 4, Helga Jara Bjarnadóttir 3/4 fráköst, Alexandra Eva Sverrisdóttir 3, Eygló Kristín Óskarsdóttir 2.

Fjölnir: Charisse Fairley 13/7 fráköst, Aðalheiður María Davíðsdóttir 11, Arna Rún Eyþórsdóttir 8, Elín Heiða Hermannsdóttir 8, Hulda Ósk Bergsteinsdóttir 7/9 fráköst, Katla Lind Guðjónsdóttir 3, Harpa Karítas Kjartansdóttir 3, Helga Björk Davíðsdóttir 2, Fanney María Bjarnadóttir 0, Svandís María Gunnarsdóttir 0.

Bílakjarninn
Bílakjarninn