Veigar Páll í tólf mánaða keppnisbann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi
Veigar Páll Alexandersson, einn af lykilmönnum úrvalsdeildarliðs Njarðvíkur í körfubolta hefur verið dæmdur í tólf mánaða keppnisbann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi í vor. Hann segir frá þessu í yfirlýsingu eftir fyrirspurn Morgunblaðsins. Veigar Páll verður því ekkert með liði UMFN á þessari keppnistíð eða til 11. maí 2027.
Yfirlýsing Veigars Páls
Ég vil segja frá því að lyfjanefnd ÍSÍ hefur úrskurðað mig í tólf mánaða langt keppnisbann eftir að ADHD-lyf, sem ég tók í tengslum við próflestur í vor, mældist í lyfjaprófi eftir keppnisleik. Frá banninu dregst tíminn sem liðinn er frá lyfjaprófinu og gildir keppnisbannið því til 11. maí næstkomandi.
Ég er þakklátur lyfjanefndinni en hámarksrefsing vegna slíkra mála er fjögurra ára keppnisbann. Tveggja til þriggja ára bann er ekki óalgengt í svona tilvikum en vegna sérstakra aðstæðna og í ljósi þess að brot mitt var ekki til að afla mér forskots við íþróttaiðkun ákvað nefndin að vægari refsing væri viðeigandi.
Ég geri mér fulla grein fyrir þeim áhrifum sem málið hefur á liðið og félagið mitt og ég mun gera mitt allra besta til að koma aftur sterkur til leiks fyrir Njarðvík eftir að banninu lýkur.
Mér þykir afar leitt að hafa brugðist trausti liðsfélaga minna. Ég hef hitt þá og forsvarsmenn félagsins og hef beðist afsökunar á mistökum mínum.
Ég styð fyllilega baráttuna gegn lyfjanotkun í íþróttum og að til staðar sé öflugt lyfjaeftirlit. Ég mun nú einbeita mér að háskólanámi mínu, ásamt almennri styrktarþjálfun, með það fyrir augum að koma sterkur til baka næsta vor.
Virðingarfyllst,
Veigar Páll Alexandersson.






