SAF
SAF

Pistlar

Kasper, Jesper og Jónatan
Miðvikudagur 14. október 2026 kl. 04:47

Kasper, Jesper og Jónatan

Nokkuð hefur verið um það í fréttum að undanförnu að þjófar hafi sótt í sig veðrið. Ekki sama veður og við höfum upplifað þessa síðustu viku en álíka hvimleitt þó. Innbrotsþjófar á ferli í skjóli nætur, þjófóttar krumlur í vösum ferðamanna og tölvupóstar frá ríkum prinsum í fjarlægum löndum. Óhugnalegt svo ekki sé meira sagt. En óhugnalegri eru þó annars konar þjófar sem starfa yfir hábjartan daginn. Þeir lifa og hrærast á heimilum manna, helst þá á sófanum.

Fyrstur er það gleðiþjófurinn. Hann nærist aðallega á samanburði. Í skrolli á föstudagskvöldi, þegar allir eru að gera eitthvað hoppandi skemmtilegt nema skrollarinn, nýtur hann sín best. Eða þegar fullkomna skandinavíska stofan hjá áhrifavaldinum skellur á skjánum, börnin fallega greidd og bíllinn tandurhreinn, skríkir gleðiþjófurinn af kæti. Hann heldur okkur uppteknum af öllu því sem aðrir gera og eiga og beinir sjónum okkar markvisst frá öllu því sem prýðir okkar eigið líf.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Næstur er það þroskaþjófurinn. Hann elskar þegar ungu fólki er pakkað í bómull. Hann vill hvorki að unnið sé með orsök né afleiðingar, sjálfstæði eða ábyrgð. Bróðir hans, æskuþjófur, er hinn mesti stuðningsmaður óþrjótandi skjátíma barna. Hugmyndaflug, ævintýri og samvera eru hans erkióvinir.

Tímaþjófurinn er sá fjórði. Pró max plús. Rétt eins og frændi hans æskuþjófur er hann ötull talsmaður skjátíma. Skjátíma hinna fullorðnu. Skroll, skroll, klikkeríklikk eru hans einkunnarorð. Hann þolir hvorki framtakssemi né elju, hvað þá dugnað!

Sá síðasti er friðþjófur, skúrkurinn sá. Hann heldur mikið upp á ærslagang heimsins og eltir okkur mannfólkið yfirleitt alla leið á koddann á kvöldin. Áhyggjur eru hans fyrsta val. Þar á eftir koma deilur og ósætti. Ef hann mætti ráða myndum við aldrei ná að lifa í sátt og samlyndi.

Af því tilefni langar mig að bjóða ykkur ókeypis þjófavörn! Varan samanstendur af samveru, samtölum, minningasköpun og núvitund. Læsið EKKI að ykkur því slík gæðavara verndar það sem skiptir okkur öll mestu máli.

Látið þetta tilboð ekki fram hjá ykkur fara!

#Auglýsing #Samstarf

Bílakjarninn
Bílakjarninn