Brjálað að gera í höfnunum á Suðurnesjunum
„Áfram gakk,“ segir einhvers staðar. Síðasti pistill var það sem kallað var svona leiðinlegur pistill, en þessi er kannski á hinum endanum, því nú er kominn nýr meirihluti í Suðurnesjabæ og við sjáum hvernig sagan um Premium of Iceland mun fara.
Allavega, það er nú hægt að segja að brjálað sé að gera í höfnunum á Suðurnesjunum núna, og ekki hjálpar að veður er búið að vera frekar erfitt og núna í þessari viku er spáð snarvitlausu veðri, svo til á sama tíma og þessi pistill kemur. Reyndar verður gott veður á þriðjudaginn og vonandi komast þá færabátarnir út, en þeir hafa lítið getað komist á sjóinn núna í október.
Í raun hafa aðeins sex færabátar komist á sjóinn núna í október. Ólafur GK sem er í Grindavík, en hann hefur landað 1,3 tonnum í 2 róðrum og var hann í Röstinni við veiðar.
Í Sandgerði eru fimm færabátar sem hafa komist á sjóinn. Dímon GK og Guðrún GK hafa báðir komist í tvær sjóferðir, Dímon GK með 890 kíló og Guðrún GK með 660 kíló. Báðir eftir að hafa verið í röstinni, Una KE með 220 kíló, Hawkerinn GK með 50 kíló sem var allt karfi og Fagravík GK sem var með 85 kíló, allir þrír eftir eina sjóferð.
Ufsinn er búinn að vera tregur bæði í Röstinni sem og á Hryggnum og Boðanum, en þangað er Sigvaldi skipstjóri á netabátnum Grímsi GK kominn, en hann er búinn að vera síðan í júlí við ufsaveiðar meðfram Suðurströndinni og hefur þá landað í Þorlákshöfn. Hann er sem sé kominn suður, hefur landað 20 tonnum í þremur róðrum og þar af tæpum 14 tonnum í Grindavík í tveimur róðrum.
Núna eru komnir tveir bátar á veiðar með línu, en Dúddi Gísla GK kom til Grindavíkur í lok september og hefur farið í þrjá róðra og landað 14 tonnum, en hann er að mestu búinn að vera með línuna undir Krísuvíkurbjargi.
Margrét GK er í Sandgerði og hefur landað þar 33 tonnum í 6 róðrum, en Margrét GK hefur verið með línuna í Röstinni og Norð Vestur út frá Sandgerði.
Núna hafa Sóley Sigurjóns GK og Pálína Þórunn GK hætt rækjuveiðum og eru báðir togarnir komnir suður. Sóley Sigurjóns GK kom til Hafnarfjarðar og landaði þar og var þá rækjutrollið tekið í land og fiskitrollið sett um borð. Togarinn fór síðan austur og landaði í Neskaupstað 104,5 tonnum í einni löndun.
Pálína Þórunn GK kom líka til Hafnarfjarðar með rækju í lok september og var þá rækjutrollið tekið frá borði og fiskitrollið sett um borð. Eins og Sóley Sigurjóns GK þá kom Pálína Þórunn GK til Neskaupstaðar en tölur um aflann hjá Pálínu voru ekki komnar þegar þessi pistill var skrifaður.
Enn sem komið er þá er enginn netabátur kominn á þorsknetaveiðar, en Sunna Líf GK er í Sandgerði á netum en hefur aðeins landað þar í eitt skipti, núna í október.
Tveir dragnótabátar hafa landað í Njarðvík en það eru bátar sem eru á veiðum í Faxaflóanum, Stapafell SH hefur landað þar 49 tonnum í 4 róðrum og Matthías SH 24 tonnum í 3. Líka í Njarðvík þá hefur Jóhanna ÁR landað 27 tonnum í 2 róðrum af sæbjúgu, en báturinn er búinn að vera á sæbjúguveiðum utan við Garð og Garðskaga og komist mest í rúm 18 tonn í einni löndun.
Hinn sæbjúgubáturinn sem var líka að landa í Njarðvík, Klettur ÍS, er kominn til Breiðdalsvíkur og er við veiðar fyrir austan og hefur landað þar 48 tonnum í 3 róðrum og mest 23 tonnum í einni löndun.







