Sextíu framúrskarandi fyrirtæki á Suðurnesjum 2026
Sextíu fyrirtæki á Suðurnesjum eru á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki 2026. Fyrirtækin koma úr öllum helstu greinum atvinnulífsins, sjávarútvegi, framleiðslu og verslun, verktakar úr iðnaðargeiranum og hugbúnaðargeiranum.
Eitt fyrirtæki á Suðurnesjum hefur verið á listanum á hverju ári síðan hann kom fyrst út árið 2010 en það er Verkfræðistofa Suðurnesja sem er á honum í sautjánda sinn. Suðurnesin eru í 3. sæti yfir landshluta utan höfuðborgarsvæðisins hvað varðar fjölda fyrirtækja sem eru framúrskarandi.
Þetta er í sautjánda sinn sem Credit-info veitir framúrskarandi fyrirtækjum í íslensku atvinnulífi vottun fyrir góðan og traustan rekstur en listinn í ár var gerður opinber á viðburði í Hörpu í síðustu viku.
VF fékk nokkrar myndir frá Creditinfo frá afhendingunni.





