Fréttir

Grindvíkingar geta keypt eignir til baka á sömu krónutölu og þeir seldu
Þriðjudagur 10. nóvember 2026 kl. 10:39

Grindvíkingar geta keypt eignir til baka á sömu krónutölu og þeir seldu

Áætlun um sölu eigna til Grindvíkinga lögð fram

Grindvíkingum verður boðið að kaupa fasteignir af Þórkötlu á sama krónutöluverði og félagið greiddi fyrir þær, með skilarétti í allt að þrjú ár. Kaupendur geta á þeim tíma skilað eigninni án skilyrða og fengið upphaflega kaupsamningsgreiðslu endurgreidda. Stefnt er að því að fyrstu samningar verði undirritaðir í byrjun árs 2027.

Þetta er kjarninn í nýrri endurkaupaáætlun félagsins sem ætlað er að auðvelda Grindvíkingum að snúa aftur þótt enn ríki óvissa vegna eldsumbrota.

Viðskiptin byggjast á kaupleigu. Kaupendur greiða lága upphafsgreiðslu og síðan mánaðarlegar greiðslur sem ganga að stórum hluta upp í kaupverðið. Þórkatla býður fjármögnun í allt að þrjú ár. Við samningsgerð færist ábyrgð eiganda á kaupandann.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Á árinu 2027 verður einnig boðið upp á að skipta upphafsgreiðslunni í tímabil án kaupleigugreiðslna og lægri kaupleigu til að auðvelda fólki fyrstu skrefin.

Úrræðið nær bæði til þeirra sem seldu Þórkötlu íbúðarhúsnæði og þeirra sem áttu lögheimili í Grindavík og höfðu náð 18 ára aldri 10. nóvember 2023. Fólk getur því keypt aðra eign en það átti áður. Fyrrverandi leigjendur geta einnig átt kost á kaupum.

Þeir sem vilja bíða geta fengið eign frátekna út árið 2027. Þá verður íbúðarhúsnæði í fjölbýli boðið Grindvíkingum til leigu á markaðskjörum. Félagið leggur áherslu á að enginn finni þrýsting.

Þórkatla hefur keypt 961 fasteign í Grindavík fyrir samtals um 72,7 milljarða króna. Af þeim hefur 31 verið dæmd altjón. Félagið er að 99,9 prósentum í eigu ríkisins.

Samkvæmt kynningargögnum byggist áætlunin á nýju áhættumati sem telur áhættu vegna búsetu ásættanlega að teknu tilliti til mótvægisaðgerða.

Horft er til þess að sala til annarra en Grindvíkinga hefjist síðar árið 2027 eða í ársbyrjun 2028.

Áætlunin verður kynnt á fundi í Gjánni í Grindavík miðvikudaginn 11. nóvember klukkan 17. Fundinum verður streymt. Frekari kynningarfundir verða haldnir á sama stað 17. nóvember klukkan 17 og 19. nóvember klukkan 12.

Tilkynning Þórkötlu í heild hér að neðan:
Fasteignafélagið Þórkatla hefur þróað sérstaka endurkaupaáætlun þar sem Grindvíkingum mun bjóðast að kaupa til baka fasteignir sem keyptar voru í kjölfar eldgosanna í nágrenni Grindavíkur. Áætlunin er framhald þeirra björgunaraðgerða sem félagið hefur unnið að frá stofnun þess í mars 2024. Grindvíkingar sem tilbúnir eru að flytja aftur í bæinn hafa þrjár leiðir til þess.
  • Endurkaup: Kaupleiga eigna
  • Frátekin eign: Svigrúm fyrir þá sem vilja bíða átektar
  • Leiga í fjölbýli: Leiga á markaðskjörum

Samkvæmt áætluninni er Grindvíkingum boðið að kaupa eignir með þriggja ára skilarétti á meðan enn ríkir óvissa vegna eldsumbrotanna.

Nánar um aðgerðirnar

Fasteignafélagið Þórkatla, sem stofnað var í þeim tilgangi að annast kaup, umsýslu og ráðstöfun íbúðarhúsnæðis í Grindavík, hefur þróað sérstaka endurkaupaáætlun sem er mikilvægur liður í endurreisn Grindavíkur.  Áætlunin er í raun sérsniðin leið sem mætir mörgum af þeim áskorunum sem blasa við Grindvíkingum við endurkaup á eignum í bænum.

Þó áætlunin snúist um kaup fasteigna þá er ekki um hefðbundin fasteignaviðskipti að ræða, heldur framhald þeirra björgunaraðgerða sem fóru af stað með stofnun félagsins í mars 2024.

Endurkaupaáætlun Þórkötlu er kynnt í ljósi nýs áhættumats fyrir Grindavík sem birt var í haust. Áhættumatið var unnið með aðferðafræði sem byggir á alþjóðlegum stöðlum og sýndu niðurstöður þeirrar vinnu að áhætta vegna aukinnar viðveru og búsetu í bænum sé ásættanleg að teknu tilliti til þeirra mótvægisaðgerða sem gripið hefur verið til.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni býðst þeim sem seldu félaginu íbúðarhúsnæði í Grindavík og þeim sem áttu lögheimili í Grindavík og höfðu náð 18 ára aldri þann 10. nóvember 2023, að kaupa fasteignir úr eignasafni Þórkötlu og flytja aftur til Grindavíkur. 

Horft er til þess að Grindvíkingar fái tækifæri á að skipta um húsnæði kjósi þeir það og að þeir sem voru á leigumarkaði eða nýttu önnur búsetuúrræði fái tækifæri til þess að eignast heimili í Grindavík.

Í fyrsta áfanga, sem stefnt er að því að hefjist í byrjun árs 2027, hyggst félagið bjóða upp á þrjár leiðir sem tryggja eiga farsæla endurkomu eða svigrúm sem flestra hópa í Grindavík:

  • Endurkaup - þ.e. kaupleiga eigna til Grindvíkinga
  • Frátekin eign - svigrúm fyrir þau sem kjósa að bíða átektar 
  • Leiga í fjölbýli - leiga á markaðskjörum til Grindvíkinga

Helstu skilmálar endurkaupa eru þessir:

  • Söluverð eignarinnar er sama og upphaflegt kaupverð Þórkötlu (sama krónutala).
  • Byggir á hugmyndafræði kaupleigu, kaupsamningi og kaupleigugreiðslum.
  • Lág kaupsamningsgreiðsla og yfirfærsla á eigendaábyrgð.
  • Áhætta kaupenda er afmörkuð í allt að þrjú ár með skilarétti og endurgreiðslu.
  • Mánaðarlegar kaupleigugreiðslur koma að stórum hluta til lækkunar á kaupverði.
  • Fjármögnun frá Þórkötlu á hagkvæmum kjörum í allt að þrjú ár. 

Í raun má líkja þessu við leigu með kauprétti, þar sem greidd er tiltekin upphafsgreiðsla, einskonar trygging og svo mánaðarlegar leigugreiðslur. 

Til að mæta þeirri óvissu sem enn ríkir í Grindavík býður félagið kaupendum upp á sérstakan skilarétt í allt að þrjú ár, þar sem kaupendur geta skilað eigninni án skilyrða og fengið upphaflega kaupsamningsgreiðslu endurgreidda. Þá verður á árinu 2027 boðið upp á svokallaða „mýkri aðlögun“ að búsetu í bænum með uppskiptingu á upphafsgreiðslu, kaupleigulausu tímabili og lægri kaupleigu.

Félagið leggur ríka áherslu á að enginn þrýstingur verði á einstaklinga til að taka ótímabæra ákvörðun um endurkaup á sínu fyrra húsnæði í Grindvík. Því býðst Grindvíkingum jafnframt leið sem kölluð er „frátekin eign“ og gildir út árið 2027.

Í öðrum áfanga, sem horft er til síðar á árinu 2027 eða í ársbyrjun 2028, verður opnað fyrir sölu eignanna til annarra aðila en Grindvíkinga.

Á vefsvæði félagsins www.thorkatla.is geta fyrrum eigendur fasteigna í Grindavík skráð sig inn á mínar síður og fengið upplýsingar um sína fyrri eign. Vefnum er ætlað að veita væntanlegum kaupendum allar helstu upplýsingar um eignir félagsins og kjör endurkaupasamnings. Þá er gert ráð fyrir því að Grindvíkingar geti síðar sótt um kaup á eign í gegnum vefinn og undirritað samning rafrænt.

Vefsvæðið hefur verið opnað og stefnt er að því að í byrjun næsta árs verði hægt að undirrita fyrstu kaupsamningana og hefja afhendingu eigna til fyrri eigenda.

Forsætisráðuneytið og Fasteignafélagið Þórkatla hf. boða Grindvíkinga til kynningarfundar miðvikudaginn 11. nóvember nk. kl. 17 í Gjánni í Grindavík. Á fundinum verður endurkaupaáætlun Þórkötlu kynnt og spurningum svarað. Fundinum verður streymt.

Frekari kynningarfundir verða svo haldnir í Gjánni í Grindavík bæði þriðjudaginn 17. nóvember kl. 17 og fimmtudaginn 19. nóvember kl.12.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100