Hviða eignarhaldsfélag
Hviða eignarhaldsfélag

Mannlíf

11 ára stelpa úr Reykjanesbæ í stóru hlutverki í Trölla sem stal jólunum
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 19. nóvember 2026 kl. 10:43

11 ára stelpa úr Reykjanesbæ í stóru hlutverki í Trölla sem stal jólunum

Hin 11 ára Sól Óskarsson Herrera úr Reykjanesbæ fer með hlutverk Hverdísar í jólasöngleiknum Þegar Trölli stal jólunum í Borgarleikhúsinu. Sól hefur æft dans frá fjögurra ára aldri og tekið þátt í ýmsum verkefnum með Ungleikhúsinu. Nú fær hún að sameina áhuga sinn á söng, dansi og leiklist á Stóra sviði Borgarleikhússins.

Sól byrjaði að æfa dans hjá DansKompaní árið 2019, þá fjögurra ára gömul. Árið 2024 gekk hún til liðs við Ungleikhúsið og hóf nám í Professional Prógrammi Ungleikhússins (PPU), þar sem hún æfir söng, dans og leiklist. Hún er nú komin í þriðju seríu prógrammsins.

Þegar Borgarleikhúsið auglýsti eftir börnum í Þegar Trölli stal jólunum ákvað Sól að láta á það reyna. Tæplega 1.200 börn skráðu sig í prufurnar og Sól undirbjó sig fyrir prufurnar með því að æfa sönginn og dansinn heima.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk
Símtalið sem hún beið eftir

Sól var heima og beið spennt eftir fréttum úr prufunum. Hún vissi að nokkrir krakkar höfðu þegar fengið svör þegar Valur Freyr Einarsson, leikstjóri sýningarinnar, hringdi í mömmu hennar. Sól áttaði sig strax á því hvað símtalið snerist um og mamma hennar setti símann á hátalara. Þegar hún heyrði að hún hefði fengið hlutverk Hverdísar varð hún svo glöð að hún kom varla upp orði. Hún hoppaði um herbergið með galopinn munninn og öskraði af gleði án þess að nokkurt hljóð heyrðist!

Rifjar upp hvernig það var að vera sex ára

Í sýningunni leikur Sól Hverdísi, eða Cindy Lou Who, sex ára stúlku sem trúir því að allir búi yfir einhverju góðu. Hún trúir því ekki að Trölli sé í raun vondur, jafnvel þótt aðrir haldi það.

Til að setja sig í spor Hverdísar rifjar Sól upp hvernig það var að vera sex ára og skoðar stundum gamlar myndir af sjálfri sér á þeim aldri. Uppáhaldsatriðið hennar er þegar Hverdís syngur fyrir Trölla. „Ég elska lagið mitt því það lætur mér líða svo vel,“ segir Sól. Henni finnst takturinn og tilfinningin í laginu sérstaklega skemmtileg og segir að þegar hún syngi það finni hún sjálf fyrir sömu trú og Hverdís: að það sé eitthvað gott í öllum.

Á stóra sviðinu

Þegar Trölli stal jólunum var frumsýnt 7. nóvember og hefur vakið mikla athygli. Sól er önnur tveggja stúlkna sem skiptast á að leika Hverdísi og fær meðal annars að syngja einsöng í sýningunni.

Sól er ekki eini ungi Reykjanesbæingurinn í sýningunni því Birkir Frosti Kjartansson er einnig í barnahópi söngleiksins. Þau þekktust áður úr Ungleikhúsinu og fá nú bæði að stíga á svið Borgarleikhússins.

Jólin eru uppáhaldstími Sólar á árinu og því er sérstaklega skemmtilegt fyrir hana að taka þátt í þessari jólasýningu. Hlutverk Hverdísar og reynslan af því að vinna með leikhópnum verða án efa minningar sem hún mun varðveita með hlýju um ókomin ár.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100