Kaffi Duus Jólahlaðborð
Kaffi Duus Jólahlaðborð

Fréttir

Sér fyrir endann á framkvæmdum við Ráðhúsið - bærinn skaðabótaskyldur í útboði
Sunnudagur 22. nóvember 2026 kl. 16:13

Sér fyrir endann á framkvæmdum við Ráðhúsið - bærinn skaðabótaskyldur í útboði

Nú sér fyrir endann á framkvæmdum við ráðhús Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12. Þetta sagði Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar nýlega.

Bæjarstjóri sagði framkvæmdirnar hafa gengið þokkalega og ekki væri útlit fyrir miklar tafir. Fjárhagsáætlanir stæðu jafnframt nokkuð vel miðað við framkvæmd af þessu tagi.

Hann sagði það tilhlökkunarefni að geta flutt aftur í Ráðhúsið og hætt að reka starfsemina á tveimur stöðum. Þegar flutningarnir yrðu að veruleika þyrfti einnig að ræða hvaða hlutverk núverandi húsnæði starfseminnar fengi en bæjarskrifstofurnar hafa verið með aðsetur í skólahúsnæði Keilis á Ásbrú.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Ekki kom fram nákvæm dagsetning fyrir flutninga eða endanlegur kostnaður framkvæmdanna. 

Nýlega komst svo Kærunefnd útboðsmála að þeirri niðurstöðu að innkaup Reykjanesbæjar á glerkerfi vegna ráðhúsframkvæmdanna hefðu ekki farið fram í samræmi við lög um opinber innkaup.

Reykjanesbær var talinn skaðabótaskyldur gagnvart Glerveggjum ehf. vegna kostnaðar við þátttöku í innkaupaferlinu og gert að greiða félaginu eina milljón króna í málskostnað. Úrskurðurinn sjálfur er frá 25. ágúst 2026.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100