Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Hafsteinn Guðnason látinn
Hafsteinn Guðnason skipstjóri. Myndin er tekin í mars 2021 þegar hann var í viðtali um sjómennskuna hjá Víkurfréttum.
Mánudagur 23. nóvember 2026 kl. 21:25

Hafsteinn Guðnason látinn

Hafsteinn Guðnason skipstjóri lést miðvikudaginn 18. nóvember.

Hafsteinn fæddist á Flankastöðum í Miðneshreppi 22. janúar 1939. Foreldrar hans voru hjónin Guðríður Guðjónsdóttir frá Ökrum á Hvalsnesi og Guðni Jónsson frá Bæjarskerjum. Hafsteinn var eitt tíu systkina sem ólust upp í Breiðabliki í Sandgerði.

Hafsteinn var sjómaður og skipstjóri í 30 ár, lengst af á uppsjávarskipum. Eftir að hann fór í land starfaði hann við ýmis störf í Keflavík. Hann bjó í Sandgerði til ársins 1970 þegar fjölskylda hans flutti til Keflavíkur.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Hafsteinn var Reynismaður alla tíð en studdi einnig Keflavík í íþróttunum með margvíslegum hætti. Hann var í forystuhlutverki um árabil í Púttklúbbi Suðurnesja og var heiðursfélagi í Vísi – félagi skipstjórnarmanna á Suðurnesjum. Þá var hann einnig virkur í starfi Lionsklúbbs Keflavíkur og hlaut þar æðstu viðurkenningu fyrir störf sín.

Eiginkona hans er Eydís B. Eyjólfsdóttir, fædd 3. desember 1940. Börn þeirra eru María, fædd 1961, Hafdís, fædd 1964, Björg, fædd 1969 og Guðni, fæddur 1971.

Barnabörnin eru níu og barnabarnabörn fimm.

Í spilaranum hér að neðan er viðtal sem Víkurfréttir tóku við Hafstein í mars 2021.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100