Blásið til veislu í Hljómahöllinni á miðvikudag
Krabbameinsfélagið fagnar 75 ára afmæli
Krabbameinsfélagið fagnar 75 ára afmæli á þessu ári og ætlar af því tilefni að halda glæsilegar afmælisveislur víðs vegar um landið. Fyrsta veislan verður haldin í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ miðvikudaginn 2. september kl. 17:00–19:00.
Afmælisveislurnar eru haldnar til að þakka öllu því dýrmæta stuðningsfólki, mánaðarlegum velunnurum, sjálfboðaliðum og félagsmönnum aðildarfélaga – þar á meðal Krabbameinsfélags Suðurnesja – sem gera starfsemi félagsins mögulega.
Frábær skemmtun og léttar veitingar
Boðið verður upp á ljúfar veitingar og skemmtidagskrá þar sem hinn landskunni tónlistarmaður Jón Ólafsson verður veislustjóri og koma þeir saman fram ásamt söngkonunni Hildi Völu Einarsdóttur.
„Við hlökkum mikið til að fá að þakka öllu hinu góða stuðningsfólki Krabbameinsfélagsins fyrir stuðninginn. Það að fólk láti sig málin varða og sýni stuðning í verki skiptir öllu máli og gerir alla starfsemi Krabbameinsfélagsins mögulega, hvort sem um er að ræða forvarnir, vísindastarf eða stuðning,“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins.
„Stórir áfangar hafa náðst en áskoranirnar eru líka margar fram á veginn. Okkar öfluga stuðningsfólk á allt gott skilið og það verður gaman að hitta það í heimabyggð.“
Alfarið rekið fyrir sjálfsaflafé
Fáir átta sig á því að Krabbameinsfélagið er alfarið rekið fyrir sjálfsaflafé. Starfsemi þess miðar öll að því að fækka þeim sem fá krabbamein, fjölga þeim sem læknast eða lifa með sjúkdómnum og tryggja sem best lífsgæði fyrir sjúklinga og aðstandendur þeirra. Verkefni á borð við Mottumars og Bleiku slaufuna leika stórt hlutverk, en ekki síst sá stóri hópur velunnara sem styður félagið mánaðarlega.
Þér er boðið!
Gleðskapurinn í Hljómahöllinni er öllum velunnurum og stuðningsfólki opinn og eru gestir hvattir til að mæta og taka jafnframt með sér gest.
-
Hvar: Hljómahöllin, Reykjanesbæ
-
Hvenær: Miðvikudaginn 2. september
-
Tími: Kl. 17:00–19:00
Eftir viðburðinn í Reykjanesbæ heldur afmælisrúta félagsins áfram ferð sinni um landið og heimsækir Selfoss (3. sept.), Akureyri (8. sept.) og Fáskrúðsfjörð (14. sept.).






