Íslandsbanki ljósanótt
Íslandsbanki ljósanótt

Mannlíf

Rómantíkin hennar sterkasta hlið en spennusagan heillar
Fimmtudagur 3. september 2026 kl. 06:15

Rómantíkin hennar sterkasta hlið en spennusagan heillar

Ada Hafliðadóttir er 15 ára og hefur skrifað og gefið út þrjár skáldsögur á ensku

Hún er aðeins 15 ára gömul, nemandi í Stapaskóla og þann 1. júní síðastliðinn gaf hún út heila bókaseríu,  þrjár enskar skáldsögur í einu. Ada Hafliðadóttir er nafn sem vert er að leggja á minnið en hún fetar nú sín fyrstu skref sem sjálfstætt starfandi rithöfundur. Bækur hennar, Solved By You, Consumed By You og Hidden By You, mynda saman seríuna Beyond The Field. Sögurnar hafa vakið mikla athygli og ein þeirra náði meðal annars inn á topp þrjú í handritakeppni Storytel eftir að Ada þýddi fyrstu bókina yfir á íslensku.

Blaðamaður Víkurfrétta settist niður með þessum efnilega rithöfundi á Bókasafni Reykjanesbæjar til að ræða bækurnar, sköpunargleðina og það að skrifa á erlendri tungu samhliða skóla.

Langbest Ljósanótt
Langbest Ljósanótt
Hugmyndirnar normalísera nútímavandamál

Ada segir að áhuginn á ritlistinni hafi fylgt henni lengi en hún byrjaði af alvöru að láta blekið flæða undir lok ársins 2024.

„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á að lesa. Því eldri sem ég varð, því meira fór mig að langa til að prófa að skrifa mína eigin bók. Mér fannst svo mikill áhugi í því að segja sögur sem mér duttu í hug. Ég leyfði starfsfólki í skólanum að lesa það sem ég var með og fékk svo góð viðbrögð að ég ákvað bara að slá til og gefa hana út,“ segir Ada brosandi.

— En um hvað fjalla þessar þrjár bækur?

„Þetta eru nútímarómantískar sögur, svona nýrómantík. Bækurnar þrjár mynda eina seríu þar sem við fylgjumst með sama vinahópnum, en hver bók einblínir á ólíka karaktera. Þetta snýst í grunninn um að normalísera og segja frá krökkum sem eru að glíma við nútímavandamál eins og kvíða og erfiðleika innan vinahópsins eða í skólanum. Sem einstaklingur sem hefur gengið í gegnum slíkt þá langaði mig að segja svolítið frá því. Þetta er ekki beint mín saga, en ég kannast við þetta og vildi að fólk gæti tengt við karakterana.“

Betra að tjá sig á ensku

Það vekur athygli að Ada skrifar sögur sínar á ensku. Aðspurð segir hún það eiga sér eðlilegar skýringar.

„Ég hef alltaf haft meiri áhuga á að lesa enskar bækur og mér fannst sögurnar mínar hreinlega meika meira sens á ensku. Svo er ég líka mjög vön því að tala ensku heima, til dæmis við frænku mína sem er að læra íslensku en er ekki alveg komin þangað. Mig langaði að hún gæti lesið bókina og eins á ég fullt af vinkonum erlendis sem geta þá notið þeirra líka.“

Það kom Ödu því skemmtilega á óvart þegar skrifstofustjórinn í skólanum benti henni á handritakeppni Storytel fyrir ungmenni á aldrinum 12 til 17 ára. Til þess að taka þátt þurfti handritið að vera á íslensku.

„Mamma og stjúppabbi sögðu bara: „Jájá heyrðu, þú tekur þátt í þessu og sleppir ekkert þessu tækifæri“. Þannig að ég settist niður og þýddi Solved By You yfir á íslensku. Það var mjög sérstakt því það er ekki hægt að beinþýða allt og ég þurfti oft að orða hlutina öðruvísi, en mér fannst það skemmtilegt. Svo fékk ég þær fréttir að sagan hefði lent í einu af þremur efstu sætunum. Mér fannst það svo klikkað að ég trúði því varla sjálf!“

Skrifað í skólastofunni og inni á herbergi

Ada fer hratt yfir sögu þegar innblásturinn lætur á sér kræla. Hún segir það taka um einn til tvo mánuði að móta hugmyndina og svo tvo til þrjá mánuði að skrifa hverja bók. En hvenær gefst tími til þess að skrifa heila bókaseríu á miðju skólaári?

„Skólinn minn, Stapaskóli, er ógeðslega næs. Þegar ég er búin með verkefnin mín og hef lítið að gera þá leyfa kennararnir mér stundum að skrifa í tíma og ég er mjög þakklát fyrir það. Svo sér fólk mig ógeðslega oft bara með tölvuna úti um allt. Annars er ég bara heima inni í herbergi að skrifa í þrjá tíma í senn.“

Hún nýtur líka dyggs stuðnings vinkvenna sinna sem hún fær til að lesa yfir fyrstu uppköstin og gefa sér hugmyndir. „Fyrsta bókin breyttist ógeðslega mikið frá fyrsta eintaki yfir í það síðasta. Vinahópurinn minn hefur sýnt mér rosalega mikinn stuðning og umhyggju. Ég gæti ekki beðið um betri vini.“

Enginn bílskúr fullur af kössum

Bækurnar þrjár eru sjálfsútgefnar í gegnum útgáfukerfi Amazon (KDP). Margir gætu haldið að slíku fylgdi mikill kostnaður og geymsluvesen, en tæknin hefur breytt miklu fyrir unga höfunda.

„Það kostar mig í rauninni ekki neitt að láta prenta bækurnar, það kostar bara ef ég vil fá eintak sjálf,“ útskýrir Ada. „Bækurnar eru einfaldlega prentaðar jafnóðum og fólk kaupir þær. Þannig að ég er ekki með fullan bílskúr af kössum til að selja!“

Ada stefnir ótrauð á að halda áfram á rithöfundabrautinni og er strax byrjuð að vinna að nýrri bók. Þótt rómantíkin sé hennar sterkasta hlið viðurkennir hún að spennusaga eða leyndardómssögur (mystery) hafi kraumað í huganum.

— Hvar er hægt að nálgast bækurnar?

Fyrir þá sem vilja kynna sér verk þessa efnilega rithöfundar úr Reykjanesbæ eru bækurnar fáanlegar á eftirfarandi stöðum:

Á Amazon: Hægt er að leita að nöfnum bókanna (Solved By You, Consumed By You, Hidden By You) ásamt nafni Ödu. Fáanlegar bæði sem rafbækur og kiljur.

Á bókasöfnum í Reykjanesbæ: Bækurnar hafa verið teknar inn á Aðalsafn Bókasafns Reykjanesbæjar og í Stapasafn í Stapaskóla, þar sem hægt er að nálgast útprentuð eintök.

Bílakjarninn
Bílakjarninn