Sköpun og notaleg samvera á Ljósanótt
Listakaffihús Bjargarinnar
Björgin, geðræktarmiðstöð Suðurnesja, býður gestum og gangandi á listakaffihús á Ljósanótt þar sem lögð verður áhersla á samveru, virkni og skapandi umhverfi. Á staðnum verður fjölbreytt handverk og vörur sem notendur Bjargarinnar hafa sjálfir skapað til sölu, ásamt því að boðið verður upp á ýmislegt góðgæti. Markmiðið er að opna dyrnar fyrir samfélaginu, sýna sköpunarkraft notenda og bjóða öllum upp á skemmtilega og hlýlega stund.
Listakaffihúsið verður opið í húsnæði Bjargarinnar við Suðurgötu í Keflavík á fimmtudaginn 3. september frá klukkan 14:00 til 18:00 og föstudaginn 4. september frá klukkan 12:00 til 16:00.









