Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Mannlíf

Vilja heiðra Gunna Þórðar í hans heimabæ
Miðvikudagur 2. september 2026 kl. 15:37

Vilja heiðra Gunna Þórðar í hans heimabæ

Ætluðu að halda eina tónleika en eru orðnir sex. Flytja helstu perlur Gunnars í lok Ljósanætur.

„Við höfum verið að heiðra Gunnar Þórðarson í tali og tónum undanfarin þrjú ár. Upphaflega ætluðum við bara að hafa eina tónleika en þeir eru nú orðnir sex og nú er komið að hans heimabæ og við erum mjög spennt að mæta í Stapann-Hljómahöll þar sem hann steig oft á svið,“ segir Hulda Jónasdóttir, viðburðarstjóri en tónleikarnir Himinn og Jörð verða á laugardagskvöldi á Ljósanæturhelginni.

Fyllum Hljómahöllina

„Við viljum auðvitað fylla Hljómahöllina nú þegar þessi meistari kveður okkur og er farinn að semja tónlist á öðrum stað. Hann á það svo sannarlega skilið,“ segir Hulda en á tónleikunum er feril Gunnars rekin í tali og tónum. „Við viðruðum þetta við Gunna og Toby konu hans í upphafi og þau tóku mjög vel í hugmyndina og hafa mætt á flesta tónleikana. Yndislegt fólk sem við kynntumst örlítið í þessu ferli okkar.“

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26
Úrval frá Gunna Þórðar

Á tónleikunum flytur hópurinn lög frá Hljómum, Trúbroti, frá sólóferli Gunnar, Þú og ég og Eurovision auk laga af Vísnaplötunum. Þá nýtur hópurinn stuðnings barnakórs. Sögumaður er á tónleikunum sem fer yfir lífshlaup Gunnars.

Bílakjarninn
Bílakjarninn