Afmæli, perlur og stórhátíðarhlátur
Glæsileg dagskrá í Hljómahöll á Ljósanótt
Fjölbreytt og glæsileg dagskrá verður í Hljómahöll á Ljósanótt í ár þar sem öllum ætti að finnast eitthvað við sitt hæfi. Afmælisbörn á borð við KK og rokksveitina Ensími munu fagna stóráföngum, Pétur Jóhann mætir til að kæta Suðurnesjamenn og stórtónleikar verða haldnir til heiðurs einu ástsælasta tónskáldi þjóðarinnar.
KK fagnar 70 árum í Bergi
Tónlistarmaðurinn Kristján Kristjánsson, eða KK eins og hann er jafnan kallaður, fagnar 70 ára afmæli sínu á árinu 2026. Af því tilefni heldur hann í tónleikaferðalag um landið allt og mætir í Berg í Hljómahöll fimmtudagskvöldið 3. september kl. 20:00. Boðið verður upp á nærandi kvöld fullt af söng, gítarleik og skemmtilegum sögum þar sem klassísk lög eins og Vegbúinn, Lucky One, Hafðu engar áhyggjur og Bein leið fá að hljóma.
Ensími með 30 ára starfsafmæli
Sama kvöld, fimmtudaginn 3. september kl. 20:00, verður annar stórafmælisviðburður í Hljómahöll þegar rokk- og indísveitin Ensími fagnar 30 ára starfsafmæli sínu. Sveitin, sem skipuð er þeim Hrafni Thoroddsen, Franz Gunnarssyni, Guðna Finnssyni, Arnari Gíslasyni og Þorbirni Sigurðssyni, hefur sent frá sér sex breiðskífur á blómlegum ferli. Á tónleikunum munu þeir stíga á stokk og flytja vel valin lög af öllum útgáfum sínum, auk þess sem óvíst er nema gestir fái að heyra eitthvað af nýmetisefni.
Pétur Jóhann mætir í Stapa í sinni bestu mynd
Hláturtaugarnar fá svo sannarlega að finna fyrir því föstudagskvöldið 4. september kl. 20:00 þegar Pétur Jóhann mætir í Stapa. Pétur hefur verið á yfirferð um landið með nýja uppistandssýningu þar sem markmiðið er einfalt: mikill og ómældur hlátur. Hann mætir sharp, skemmtilegur og í sínu besta formi til að kæta Suðurnesjamenn á stórhátíðinni.
Himinn og jörð: Dægurlagaperlur Gunnars Þórðarsonar
Hátíðardagskránni í Hljómahöll lýkur svo með glæsibrag sunnudagskvöldið 6. september kl. 20:00 í Stapa með stórtónleikunum Himinn og jörð, þar sem dægurlagaperlum Gunnars Þórðarsonar eru gerð skil. Gunnar er án efa einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar, en hann hefur samið yfir 800 lög ásamt því að semja kvikmynda- og klassíska tónlist.
Fjölbreyttur hópur frábærra söngvara og tónlistarmanna tekur þátt í tónleikunum. Meðal söngvara eru Arna Rún Ómarsdóttir, Daníel E. Arnarsson, Sigurlaug Vordís, Gísli Magna, Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir, Kristján Gíslason og Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm, ásamt sérstökum gestum úr söngleikjadeild Dansskóla Birnu Björns. Sögumaður kvöldsins er Valgerður Erlingsdóttir, Magnús Þór Sveinsson stýrir hljómsveit og Stefán Örn Gunnlaugsson sér um útsetningar. Gestir mega eiga von á að heyra perlur eins og Fyrsti kossinn, Bláu augun þín, Gull, Vetrarsól og mörg fleiri meistaraverk.
Athugið að 18 ára aldurstakmark er á alla viðburðina. Miðasala er hafin á hljomaholl.is.







