Nína á Ljósanótt
Listasafn Reykjanesbæjar opnar sýninguna Nína, okkar kærasta Nína á Ljósanótt, fimmtudaginn 3. september kl. 18:00. Sýningin varpar nýju ljósi á líf, verk og arfleifð Nínu Sæmundsson (1892–1965), eins merkasta frumkvöðuls íslenskrar höggmyndalistar, og nálgast sögu hennar út frá hinsegin sjónarhorni.
Nína var ein fyrst íslenskra kvenna til að leggja höggmyndalist fyrir sig sem ævistarf. Hún nam við Listaakademíuna í Kaupmannahöfn og starfaði síðar í París og Bandaríkjunum, þar sem hún byggði upp farsælan feril. Eftir heimkomuna til Íslands árið 1955.
Á sýningunni verða meðal annars sýnd brot úr Hafmeyjunni, einu umdeildasta verki íslenskrar listasögu. Höggmyndinni var komið fyrir í Tjörninni í Reykjavík árið 1959 en á nýársnótt 1960 var hún sprengd í loft upp. Verkið hafði þá sætt harðri opinberri gagnrýni og brotin má sjá á sýningunni.
Verk Nínu eru sett í samtal við ný verk eftir Diljá Þorvaldsdóttur, Jo Pawlowska, Olgu Bergmann, Sabine A. Fischer og Victoria Ahrens. Listafólkið tekur verk Nínu sem útgangspunkt og opnar þau fyrir nýjum túlkunum á meðal annars valfjölskyldu, nánd, sjálfsmynd, bernsku, náttúru og umbreytingu.
Sýningarstýrur eru Viktoría Guðnadóttir og Dr. Ynda Eldborg.
Nína, okkar kærasta Nína opnar 3. september kl. 18:00 og stendur til 29. nóvember 2026.
Sýningin er styrkt af Safnasjóði, Kvikmyndasjóði, Myndlistarsjóði og Sýn.
Meðfylgjandi eru ljósmyndir frá sýningunni og D. Ljósmyndari er Vigfús Birgisson.







