Mannlíf

Vitadagar í Suðurnesjabæ formlega settir
Þriðjudagur 25. ágúst 2026 kl. 21:30

Vitadagar í Suðurnesjabæ formlega settir

Vitadagar í Suðurnesjabæ voru settir með viðhöfn í gærkvöldi þegar Alexandra Jóhannesdóttir, bæjarstjóri Suðurnesjabæjar, lýsti hátíðina formlega setta eftir samverugöngu bæjarbúa frá Sandgerði og Garði að golfskálanum við Kirkjuból.

Frá Sandgerði: Hópurinn lagði af stað frá Þekkingarsetrinu undir stjórn Ara Gylfasonar, formanns knattspyrnudeildar Reynis.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Frá Garði: Hópurinn hóf göngu frá Víðisvelli undir stjórn Gísla Heiðarssonar, formanns knattspyrnudeildar Víðis.

Þegar gangan náði áfangastað við Golfskálann tók við vegleg veisla. Gestir nutu grillaðra pylsa í boði Kjörbúðarinnar ásamt heitri kjötsúpu frá Skólamat.

Sirkus Íslands sá um að skemmta viðstöddum með litskrúðugum atriðum við mikinn fögnuð viðstaddra. Dagskrá Vitadaga heldur áfram næstu daga með fjölbreyttum viðburðum fyrir alla fjölskylduna.

Vitadagar 2026 // setningarathöfn

Bílakjarninn
Bílakjarninn