Anna Ósk mætir á Ljósanótt með nýja listsköpun
Suðurnesjakonan og ljósmyndarinn Anna Ósk Erlingsdóttir er að koma heim á Ljósanótt með sýningu sem er talsvert frábrugðin því sem hún hefur áður gert. Anna Ósk, sem búið hefur í Gautaborg um árabil og starfað þar sem ljósmyndari og kennari, mætir til leiks í Fischershúsi með nýstárlega listsköpun þar sem hún rekur mörk ljósmyndunar og málverks saman, með því að prenta eigin ljósmyndir á striga og mála yfir þær með olíu og akrýl.
Anna Ósk hefur lengi verið þekkt fyrir ljósmyndun sína og kennslu, en hún hefur búið í Svíþjóð síðan 2010 þar sem hún kennir m.a. við Folkuniversitetet í Gautaborg. Hugmyndin að því að tvinna saman ljósmyndun og málun hefur hins vegar legið í dvala hjá henni í tæpan áratug.
„Ég er búin að vera í ljósmyndun svo lengi að það var kominn tími á að gera eitthvað annað og þróa þetta lengra. Mig var búið að langa til að prófa þetta í tíu ár,“ segir Anna Ósk. Eins og oft gerist vantaði tæknina og rétta tækifærið til að láta slag standa.
Fékk innblástur hjá Bergþóri Morthens og fór á námskeið
Fyrir nokkrum árum fékk Anna Ósk að kíkja í heimsókn á vinnustofu Bergþórs Morthens í Gautaborg, en hann hefur náð góðum árangri í málverkinu ytra. „Hann gaf mér nokkur góð ráð og tips, en það var síðan ekki fyrr en nýlega sem ég lét verða af þessu. Þar sem ég kenni við háskólann fæ ég að fara á námskeið hjá þeim. Ég skráði mig einfaldlega á málunarnámskeið, mætti með málningardótið og sagði kennaranum að ég ætlaði kannski ekki að fylgja námskránni heldur prófa mína eigin hugmynd, að mála á ljósmyndastriga.“
Anna segir það hafa verið nauðsynlegt að fá pláss á vinnustofu fyrir subbuverkið. „Ég er svo mikill hrakfallabálkur að ég myndi mála allt heimilið mitt og gólfin í olíulitunum ef ég væri að gera þetta í íbúðinni hjá mér!“ segir hún og hlær.
Frábrugðið gervigreindinni og gefur miklu meiri dýpt
Með því að prenta ljósmyndirnar á striga og mála síðan ofan í þær með olíu og akrýl fær hún allt aðra áferð og dýpt í myndirnar.
„Þetta verður eins og 3D-áhrif. Maður fær miklu meiri áferð, dýpri liti og getur breytt bakgrunninum eða stemningunni algjörlega. En það sem er kannski skemmtilegast er vinnuferlið. Þegar ég er í stórri ljósmyndatöku þá þarf ég að stýra öllu, módelum, förðun, hári, hönnuðum og aðstoðarfólki. En í máluninni er ég bara ein með tónlist í heyrnartólunum að dunda mér í mínum eigin heimi.“
Í heimi þar sem gervigreind (AI) er farin að taka mikið pláss í stafrænni myndvinnslu vildi Anna Ósk fara í þveröfuga átt. „Ég hata AI og vildi alls ekki fara þá leið. Ég vildi fara í handverkið og gera eitthvað raunverulegt með höndunum.“
Aðspurð hvort margir séu að gera þetta segir hún listformið frekar óvenjulegt. „Fólk hefur verið að taka gamlar myndir eða tímaritamyndir og mála á þær, en það eru fáir sem nota eigin ljósmyndir og olíumála á þær á þennan hátt. Þegar ég var með pop-up sýningu í Gautaborg kom fólk og spurði: „Bíddu, tókst þú myndina líka?!“ Fólk var ekki alveg að fatta að ég væri bæði ljósmyndarinn og málarinn.“
Fjölbreytt úrval í Fischershúsi á Ljósanótt
Anna Ósk verður til húsa í Fischershúsi á Ljósanótt. Hún mun sýna original málverk á striga í ýmsum stærðum, auk þess sem hún verður með ódýrari valkosti fyrir gesti og gangandi.
„Það er dálítið mál að ferðast með mikið af stórri og innrammaðri list í ferðatöskum frá Svíþjóð, en ég verð með nokkur stór og glæsileg frummálverk, bókina mína, póstkort og ýmsan varning. Ég vil að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi sem kostar ekki handlegg og fót,“ segir Anna Ósk og hlakkar mikið til að hitta Suðurnesjamenn og aðra gesti Ljósanætur.








