Hópakstur bifhjóla og glæsikerra niður Hafnargötu
Bifhjólaklúbburinn Ernir og Akstursíþróttafélag Suðurnesja standa fyrir hinum ómissandi hópakstri á Ljósanótt laugardaginn 5. september á milli klukkan 15:00 og 15:30.
Ökutækin hefja akstur frá Ægisgötu og aka niður Hafnargötu.
Að akstri loknum verður tækjunum lagt þar sem gestir geta virt þau fyrir sér frá næsta grasi; bifhjólum verður lagt við smábátahöfnina fyrir aftan Duus safnhús og glæsikerrunum við Duusgötu og Gróf.







