BM Vallá 1-10 sept

Mannlíf

Oddfellowhúsið aftur fullt af lífi á Ljósanótt
Fimmtudagur 3. september 2026 kl. 18:21

Oddfellowhúsið aftur fullt af lífi á Ljósanótt

Á Ljósanótt verður Oddfellowhúsið í Keflavík enn á ný opnað gestum bæjarhátíðarinnar og húsið fyllt af list, hönnun, tónlist og góðri stemningu.

Þetta er annað árið sem Oddfellowhúsið er nýtt með þessum hætti á Ljósanótt. Frábærar viðtökur í fyrra hvöttu okkur til að endurtaka leikinn og skapa aftur lifandi vettvang fyrir list og menningu í hjarta hátíðarinnar.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Í ár kemur saman einstaklega fjölbreyttur hópur sýnenda:

  • Ásmundur Friðriksson – rithöfundur
  • Dagmar Róbertsdóttir – myndlist
  • Hendrikka Waage – myndlist og skartgripir
  • Hlín Reykdal – skartgripir
  • Jollington Handverk – Eyjólfur Sverrisson – tréhandverk
  • Katla María Brynjarsdóttir – myndlist
  • Krósk – Kristín Ósk Halldórsdóttir – fatahönnun
  • Leirbakaríið – María Kristín Óskarsdóttir – leirlist
  • Neskja – handgert konfekt
  • Ragnhildur Jónsdóttir – Jónsdóttir & Co – hönnun
  • Reynir Valbergsson – myndlist
  • URÐ – Erla Gísladóttir – íslenskt vörumerki

Við opnun sýningarinnar fimmtudaginn 3. september kl. 17 verður einnig líf og fjör þegar hljómsveitin Krummafótur leikur fyrir gesti.

Oddfellowstúkan Eldey sér um veitingasölu meðan á sýningunni stendur og rennur allur ágóði af veitingasölunni til líknarmála. Þannig sameinast list, samfélag og góðgerðarmál undir einu þaki.

Okkur þykir sérstaklega vænt um að geta opnað þetta frábæra hús fyrir bæjarbúum og gestum Ljósanætur á ný og sýnt hversu skemmtilegur vettvangur Oddfellowhúsið getur verið fyrir menningu og mannlíf.

Við hvetjum fólk til að líta við, hitta listafólkið og hönnuðina og njóta veitinga og stemningar í okkar frábæra húsi.

Oddfellowhúsið í Keflavík – 3.–6. september 2026.

Komdu og upplifðu sköpun, stemningu og samfélag í hjarta bæjarins.

Bílakjarninn
Bílakjarninn