Páll Óskar tryllti gesti við setningu Ljósanætur 2026 — myndasafn
Um 200 viðburðir um allt bæjarfélagið um helgina
Ljósanótt var formlega sett í dag í Skrúðgarðinum í Reykjanesbæ. Fulltrúar Ungmennaráðs drógu risastóran Ljósanæturfána að húni að viðstöddum fjölda bæjarbúa og leik- og grunnskólabörn úr sveitarfélaginu fluttu söngva af mikilli innlifun við hátíðlega stemmningu þar sem Páll Óskar var leynigestur.
Gleðin verður í fyrirrúmi dagana 3.–6. september en þá fyllist Reykjanesbær af list, tónlist og samveru. Yfir 200 viðburðir verða í boði á meðan á hátíðinni stendur og ættu öll að finna eitthvað við sitt hæfi.








