Að rótum: Sigurdís Gunnarsdóttir með einkasýningu á Park-Inn á Ljósanótt
Listakonan Sigurdís Gunnarsdóttir heldur sína fimmtu einkasýningu, en þá fyrstu á Ljósanótt, á Park-Inn hótelinu í Reykjanesbæ. Sýningin ber heitið Að rótum og hefur ríka tengingu við æskuslóðir hennar í Njarðvík.
Sigurdís á sér fjölbreytta sögu en hún er Njarðvíkingur í húð og hár, fædd í heimahúsi í Grænási þar sem amma hennar, sem var ljósmóðir, tók á móti hennar. Faðir hennar starfaði hjá Loftleiðum og bjó hún því ytra á Bahamaeyjum og í Bandaríkjunum fram á unglingsár. Eftir heimkomuna flutti fjölskyldan aftur í Njarðvík þar sem hún æfði körfubolta og hún átti síðan frumburð sinn í Keflavík. „Ég bjó þar um tíma en flutti síðan búferlum til Akureyrar og síðan til Reykjavíkur þar sem ég bý nú,“ segir Sigurdís en síðar lá leiðin til Akureyrar og loks Reykjavíkur þar sem hún býr núna.
„Það er eitthvað við staðinn sem maður kemur frá sem fylgir manni alla ævi. Þótt leiðin liggi víða, leitar hugur og hjarta oft aftur að rótunum. Með þessari sýningu finnst mér eins og ég sé að snúa heim — heim til að heimsækja minningarnar og finna tengsl við staðinn og fólkið,“ segir Sigurdís.
Verkin á sýningunnbi eru draumkenndar abstract landslagsmyndir málaðar á árinu 2026 með olíu á striga og við. Sigurdís er með vinnustofu við sjóinn á Eyrarbakka sem gefur hennar endalausan innblástur, en verkin einkennast af kyrrð, hlýju og ró þar sem náttúran leikur stórt hlutverk.
Sigurdís hefur stundað mikið nám síðastliðin 30 ár, meðal annars í Myndlistarskóla Reykjavíkur, Kópavogs og Mosfellsbæjar, auk Central Saint Martin’s í London og kennslu og leiðsögn hjá fjölda listamanna.
Verk hennar hafa verið til sýnis í Gallery Art 67 á Laugavegi, en hægt er að fylgjast með list hennar á Instagram (sigurdis_gunnars) og Facebook (Sigurdis Art).









