Betri Bær ljósanótt
Betri Bær ljósanótt

Mannlíf

Kolfallin fyrir golfíþróttinni
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 5. september 2026 kl. 10:17

Kolfallin fyrir golfíþróttinni

Birgitta Rún Birgisdóttir gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi í sumar, nýbyrjuð í íþróttinni. Hún er klár í Ljósanótt 2026.

Birgitta Rún Birgisdóttir er ein af mörgum sem hafa fallið fyrir golfíþróttinni en hún og kærasti hennar eru nýbyrjuð í íþróttinni. Unga konan gerði sér síðan lítið fyrir og fór holu í höggi í sumar. Birgitta er virk á Ljósanótt þar sem hún sækir viðburði og nýtur hátíðarinnar. Sumarið hefur verið skemmtilegt hjá henni í golfi, göngum, veiði og fleiru.

Hvernig varðir þú sumarfríinu?

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Þrátt fyrir blautt sumar hér á suðvestur horninu þá er það búið að vera dásamlegt hjá okkur fjölskyldunni. Við Toni kærastinn minn byrjuðum að læra golf svo við höfum reynt að koma því sem mest fyrir í sumar. Við fórum líka að veiða með fjölskyldunni og nutum þess að vera í sveitinni okkar í Grímsnesi. Fótbolta- og körfuboltamót hjá strákunum okkar voru stór partur af sumrinu og ég endaaði sumarfríið svo á frábærri ferð með Fjallagellunum mínum á Borgarfjörð eystri þar sem við áttum skemmtilega daga og gengum m.a. að Stórurð í grenjandi rigningu. Ég held að lærdómur sumarsins sé klárlega sá að í góðum félagsskap skiptir veðrið engu máli.

Hvað stóð upp úr?

Klárlega allir golfhringirnir og veiðiferðirnar með fólkinu mínu.

Hvað kom skemmtilega á óvart í sumar?

Ætli ég verði ekki að nefna það að ég fór holu í höggi um verslunarmannahelgina þegar ég fór í golf með pabba og strákunum mínum. Ég sá kúluna ekki fara ofan í holuna og leitaði að henni í dágóða stund eða þangað til Tómas sonur minn kallaði á mig og benti mér á að hún væri ofan í holunni.

Áttu þér uppáhaldsstað til að heimsækja innanlands?

Sumarbústaðurinn sem foreldrar mínir eiga hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá okkur strákunum mínum. Annars er fátt sem toppar útiveru í fallegri íslenskri náttúru á góðum sumardegi, óháð staðsetningu.

Er eitthvað sérstakt á verkefnalistanum í vetur?

Það er yfirleitt nóg að gera hjá mér á veturna en þennan vetur ætla ég að gefa mér tíma í að æfa mig í golfi og mæta vonandi með aðeins betri færni í Leiruna næsta vor.

Hvernig finnst þér Ljósanótt?

Við íbúar Reykjanesbæjar megum vera stolt af þeim menningarhátíðum sem bæjarfélagið okkar stendur fyrir og hef ég alltaf haft mjög gaman af Ljósanótt. Mér finnst sérstaklega skemmtilegt að sjá hvað lifnar yfir öllu bæjarfélaginu og allir tilbúnir að taka höndum saman svo hátíðin verði sem glæsilegust.

Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á Ljósanótt?

Ég reyni yfirleitt að koma við á sem flestum listasýningum og mun ég halda því áfram. Ég stefni svo á að hitta vinkonur mínar, fá mér kjötsúpu frá Skólamat, mæta í árgangagönguna og á kvöldtónleikana á laugardagskvöldinu með fólkinu mínu.

Hver er besta minningin þín frá Ljósanótt?

Ég á erfitt með að nefna eina sérstaka minningu því ég á svo margar góðar frá þessari helgi en ætli það sé samt ekki fyrir ca. 4 árum síðan, þegar við fengum bongóblíðu á laugardeginum. Ég held að ég hafi aldrei séð jafn mikið af fólki í miðbæ Reykjanesbæjar og það verður eitthvað svo skemmtileg stemning þegar veðurguðirnir eru með okkur í liði.

Hefur skapast hefð í tengslum við Ljósanótt, eitthvað sem þú gerir alltaf?

Ég reyni alltaf að komast yfir sem mest af dagskránni á laugardeginum og fer á kvöldtónleikana með fjölskyldunni en það hefur líka verið skemmtileg hefð að fara á röltið á opnun listasýninga á fimmtudagskvöldinu með góðum vinkonum og starta þannig frábærri helgi.

Bílakjarninn
Bílakjarninn