Sveitin er ljúf og golfið sló í gegn
María Guðmundsdóttir og Unnar maður hennar féllu fyrir golfíþróttinni en eru líka mikið í bústaðnum í Bláskógabyggð.
María Guðmundsdóttir og Unnar Ragnarsson maður hennar, eigendur HUG verktaka, eru ekki bara að smíða hús og íbúðir. Þau hafa verið dugleg að sækja sumarbústað sinn í Bláskógabyggð, þau fóru austur í blíðuna í júlí og svo kynntust þau nýlega golfíþróttinni sem heillaði þau upp úr skónum.
Hvernig varðir þú sumarfríinu?
Við hjónin erum búin að eignast nýtt og skemmtilegt áhugamál sem er golfið. Við höfum stundað það af kappi í sumar þegar færi hefur gefist. Við fórum líka í skemmtilegt ferðalag um Austfirðina í veðurblíðunni sem var þar og auðvitað nýttum við tækifærið til að kíkja á golfvellina. Við náðum þarna skemmtilegri stund með systur minni og mági.
Hvað stóð upp úr?
Við verjum miklu af frítímanum í sveitasælunni okkar í Bláskógabyggð en þar höfum við byggt notalegt athvarf þar sem okkur líður vel. Í sveitinni er afskaplega gott samfélag og gott fólk í kringum okkur og alltaf eitthvað skemmtilegt í gangi.
Hvað kom skemmtilega á óvart í sumar?
Það sem kom mér skemmtilega á óvart var hvað golfið náði að heilla mig. Það er næstum sama hvernig viðrar, alltaf erum við til í að fara einn hring. Við fórum líka alveg óvænt vestur til Suðureyrar á æskuslóðir tengdapabba og nutum þar einleikjahátíðarinnar Act alone með góðum vinum.
Áttu þér uppáhaldsstað til að heimsækja innanlands?
Fyrir nokkrum árum fórum við Unnar í ógleymanlega gönguferð um Borgarfjörð eystri og Stórurð heillaði okkur. Við erum ákveðin í að fara þangað aftur. Einnig fórum við í skemmtilega göngu í Jökulfjörðunum og Hesteyri er staður sem við munum heimsækja aftur.
Er eitthvað sérstakt á verkefnalistanum í vetur?
Eitt stærsta hlutverkið mitt er að ég er amma átta yndislegra barna og þykir mér dýrmætt að fá að njóta samveru með þeim. Við Unnar höfum lagt mikið upp úr því að eiga gæðastundir saman í sveitasælunni og njóta hvers dags eins og hann kemur.
Hvernig finnst þér Ljósanótt?
Ljósanótt er mjög skemmtileg bæjarhátíð og þar hittir maður mikið af fólki sem maður hittir sjaldan annars. Ljósanótt er í raun miðpunktur menningarlífs í Reykjanesbæ.
Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á Ljósanótt?
Við höfum alltaf reynt að fara í bæinn á fimmtudagskvöldinu og skoða hinar fjölbreyttu listsýningar sem í boði eru og njóta mannlífsins og stemningarinnar. Einnig finnst mér árgangagangan skemmtileg hefð sem gaman er að taka þátt í.









