Ljósanæturkjötsúpa í upphafi skólaárs
Skólamatur þjónustar um 125 leik- og grunnskóla og um 18 þúsund nemendur og starfsfólk á hverjum degi.
Ágúst er alltaf annasamur mánuður hjá starfsfólki Skólamatar. Samhliða því að nemendur snúa aftur í skólana eftir sumarfrí stendur yfir undirbúningur fyrir hina árlegu Ljósanæturkjötsúpu. Eftir góðar viðtökur undanfarin ár býður Skólamatur gestum Ljósanætur á ný upp á þennan þjóðlega og kjarngóða rétt.
Ljósanæturkjötsúpan er fyrir löngu orðin fastur liður í hátíðinni og einn af hápunktum dagskrár á föstudeginum. Samkvæmt dagskrá Ljósanætur leggur Skólamatarlestin af stað frá höfuðstöðvum fyrirtækisins klukkan 18:00 og í kjölfarið hefst skömmtun á súpunni við Tjarnargötu 12.
Á sama tíma og hátíðarundirbúningurinn stendur sem hæst er nýtt skólaár farið af stað hjá fyrirtækinu. Skólamatur þjónustar í dag um 125 leik- og grunnskóla á suðvesturhorni landsins og sér daglega um skólamáltíðir fyrir um 18 þúsund nemendur og starfsfólk.
„Upphaf skólaársins er alltaf stór áfangi hjá okkur. Á sama tíma og börn og starfsfólk skólanna hefja sitt skólaár erum við að koma af stað umfangsmikilli starfsemi sem snertir daglegt líf þúsunda barna og starfsmanna á hverjum degi,“ segir Jón Axelsson, forstjóri Skólamatar.
„Haustið byrjar alltaf hjá okkur í byrjun ágúst þegar við höldum fræðsludaga fyrir starfsfólk. Þar komum við saman og förum yfir reglur, verklag og nýjungar sem tengjast meðal annars matvælaöryggi, sérfæði, þjónustu og gæðamálum,“ segir Jón.
Jón segir jafnframt að ýmsar nýjungar séu fyrirhugaðar á komandi skólaári.
„Við ætlum meðal annars að breyta framsetningu vegan-máltíða, efla meðlætisbarinn með auknu úrvali og bæta upplýsingagjöf sem tengist sérfæði. Markmiðið er að gera þjónustuna enn betri fyrir nemendur, foreldra og skóla.“
Einn þeirra þátta í starfsemi Skólamatar sem hafa vaxið hvað mest á undanförnum árum er afleysingaþjónusta í leik- og grunnskólum. Með henni getur fyrirtækið brugðist hratt við þegar upp koma tímabundnar áskoranir, til dæmis vegna veikinda starfsfólks eða framkvæmda í skólahúsnæði.
Frekari uppbygging
Til að mæta áframhaldandi vexti stendur nú yfir frekari uppbygging á höfuðstöðvum Skólamatar á Iðavöllum í Reykjanesbæ. Þar er verið að taka í notkun nýja viðbyggingu og bæta við framleiðslutækjum sem styrkja framleiðslugetu fyrirtækisins og skapa aukið svigrúm til þróunar og framleiðslu á fjölbreyttum og hollum skólamáltíðum.
Þegar framkvæmdum lýkur er áætlað að framleiðslugeta fyrirtækisins aukist um allt að helming og styrki þannig enn frekar getu þess til að mæta vaxandi eftirspurn eftir skólamáltíðum.
Um 250 starfsmenn
Hjá Skólamat starfa nú um 250 manns og er undirbúningur haustsins eitt stærsta og umfangsmesta verkefni ársins. Markmiðið er að tryggja að nemendur og starfsfólk skóla fái næringarríkar, öruggar og góðar máltíðir frá fyrsta degi skólaársins.
„Við erum stolt af því að vera hluti af skólasamfélaginu og hlökkum bæði til að taka þátt í Ljósanótt og hefja nýtt skólaár með okkar viðskiptavinum. Ljósanótt er jafnframt frábært tækifæri til að hitta foreldra, nemendur, starfsfólk skóla og aðra íbúa svæðisins á sama tíma og við undirbúum eitt mikilvægasta verkefni okkar, að sjá þúsundum barna fyrir góðum skólamáltíðum á hverjum degi,“ segir Jón Axelsson.







