Viðskipti

Viney fagnar eins árs afmæli á Ljósanótt
Miðvikudagur 2. september 2026 kl. 18:09

Viney fagnar eins árs afmæli á Ljósanótt

— Suðurnesjafólk tilbúið að versla í heimabyggð þegar þjónustan og úrvalið er til staðar

Snyrtivöruverslunin Viney á Hafnargötu 35 í Reykjanesbæ fagnar um þessar mundir eins árs afmæli. Verslunin opnaði dyrnar á Ljósanótt í fyrra og hefur vöxturinn verið hraður. Á einu ári hefur vörumerkjum í versluninni fjölgað úr 11 í 26 og segja forsvarsmenn verslunarinnar viðtökurnar hafa sýnt að Suðurnesjafólk sé tilbúið að versla í heimabyggð þegar þjónustan og úrvalið er til staðar.

Viney er fjölskyldufyrirtæki í eigu hjónanna Pálínu Guðjónsdóttur og Ívars Þórðarsonar. Þau segja flestar ákvarðanir teknar yfir eldhúsborðinu heima, allt frá því hvaða vörumerki séu tekin inn til þess hvernig verslunin er hönnuð.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26
Vildu bæta þjónustuna í heimabænum

Hugmyndin að stofnun Vineyjar spratt af þörf sem Pálína og Ívar sáu í nærsamfélaginu.

„Reykjanesbær er yfir 22 þúsund manna bæjarfélag, um tvöfalt fjölmennara en Selfoss þar sem heil flóra af sérverslunum þjónustar íbúana. Bæjarfélag af okkar stærð á að standa undir sínu eigin úrvali. Það á ekki að þurfa að keyra til Reykjavíkur til að fá almennilegt úrval af snyrti- og húðvörum, og enn síður til að fá ráðgjöf sem er eitthvað meira en „þessi er vinsæl núna“,“ segir Ívar.

Fyrsta árið hefur gengið vonum framar og segja þau Pálína að reynslan hafi sýnt að íbúar á Suðurnesjum kunni vel að meta góða þjónustu. Í versluninni er lögð áhersla á að bjóða vandaðar vörur fyrir alla hópa, þar á meðal sígild merki á borð við Estée Lauder og Clinique, íslenska framleiðslu eins og Andrea Maack og DrBragi, ásamt miklu úrvali af vinsælum kóreskum húðvörum.

Hlustað á viðskiptavinina og hafist handa

Pálína og Ívar leggja mikla áherslu á að hlusta á óskir viðskiptavina.

„Í desember í fyrra fengum við sérstaklega margar fyrirspurnir um hárvörur og karlmannavörur. Strax eftir áramót fórum við í málið og bættum við þremur hágæðamerkjum: K18, Design.me og Daimon Barber,“ segir Pálína.

Á þessu ári tók fyrirtækið svo stórt skref þegar það hóf beinan innflutning og tryggði sér einkaumboð fyrir tvö vörumerki á Íslandi, Rom&nd og s.nature.

„Þetta eru bæði merki sem margir hafa verið að kaupa erlendis, en nú eru þau fáanleg hjá okkur á Hafnargötunni og í vefversluninni okkar, viney.is,“ bætir Ívar við.

Veisluhöld og sérfræðingar á Ljósanótt

Hringurinn lokast á Ljósanótt, en Ljósanótt í fyrra var einmitt fyrsta alvöru helgin í rekstri verslunarinnar. Í tilefni afmælisins verður slegið upp hátíð í versluninni alla hátíðina.

Kvöldin 2. og 3. september mun Viney bjóða upp á léttar veitingar, vín og drykki á Hafnargötu 35. Þá mæta sérfræðingar frá nokkrum vörumerkjum og ilmhönnuðurinn Andrea Maack verður einnig á staðnum til að kynna ilmi sína. Einnig verður boðið upp á afslætti og kaupauka allt hátíðarhaldið.

„Endilega kíkið við og spjallið við okkur. Við verðum þarna allan tímann og hlökkum mikið til að fagna með bæjarbúum,“ segir Pálína að lokum.

Opnunartími Viney á Ljósanótt:

  • Miðvikudagur: 11:00–22:00
  • Fimmtudagur: 11:00–22:00
  • Föstudagur: 11:00–20:00
  • Laugardagur: 11:00–20:00
  • Sunnudagur: 13:00–17:00

Verslunin er staðsett á Hafnargötu 35 í Reykjanesbæ og vefverslun á www.viney.is

Bílakjarninn
Bílakjarninn