Tvö bæjarráð vilja endurskoðun á fjármögnun fjarprófa á Suðurnesjum
Bæjarráð Suðurnesjabæjar og bæjarráð Sveitarfélagsins Voga hafa lýst áhyggjum af breytingum á fjarprófaþjónustu á Suðurnesjum. Bæjarráð Suðurnesjabæjar gerir alvarlegar athugasemdir við að umsjón þjónustunnar færist frá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum (MSS) til Þekkingarseturs Suðurnesja og að árlegt framlag lækki úr 5,9 milljónum króna í 3,6 milljónir, eða um 39%.
Í bókun Suðurnesjabæjar segir að MSS hafi sinnt þjónustunni í 28 ár. Um 1.186 fjarpróf séu haldin árlega á Suðurnesjum, sem jafngildi um 13% fjarprófa hjá viðurkenndum prófastöðum á landinu. Bæjarráðið gagnrýnir að föstu fjármagni verði úthlutað jafnt milli prófastaða án tillits til fjölda prófa og umfangs þjónustunnar.
Bæjarráð Suðurnesjabæjar segir breytinguna geta haft áhrif á aðgengi íbúa að háskólanámi í heimabyggð. Það gagnrýnir jafnframt að ákvörðunin hafi verið tekin án samráðs við MSS, Þekkingarsetur Suðurnesja eða sveitarfélögin á svæðinu. Bæjarráðið skorar á ráðuneytið að endurskoða ákvörðunina og hefur falið bæjarstjóra að fylgja málinu eftir gagnvart ráðuneytinu og þingmönnum kjördæmisins.
Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga tekur undir áhyggjur MSS og Þekkingarsetursins. Í bókun þess segir að fjármögnun þjónustunnar þurfi að taka mið af raunverulegri þörf og umfangi verkefnisins og að tryggja þurfi samráð við hlutaðeigandi aðila. Bæjarráðið hvetur ráðherra til að endurskoða fyrirhugað fyrirkomulag og hefur falið bæjarstjóra að koma bókuninni á framfæri við ráðuneytið.








