Umhverfisviðurkenningar við hátíðlega heimsókn
Umhverfisviðurkenningar Reykjanesbæjar 2026 voru afhentar miðvikudaginn 2. september. Afhendingin var með breyttu og skemmtilegu sniði í ár þar sem verðlaunahafar voru heimsóttir og viðurkenningarnar afhentar á hverjum stað fyrir sig.
Ferðin hófst í Vatnsholti og þaðan var haldið víða um sveitarfélagið. Þetta nýja fyrirkomulag gaf gestum tækifæri til að sjá með eigin augum þá miklu vinnu, alúð og umhyggju sem liggur að baki hverri viðurkenningu. Afhendingin gekk einstaklega vel og var tekið hlýlega á móti hópnum á öllum stöðum.

Skógræktarfélag Suðurnesja – Vatnsholt
Samfélagsviðurkenning í tilefni 20 ára uppbyggingar og starfs í Vatnsholti.

Vallargata 23 – Litli Bær – Viðhald á eldra húsi
Róbert Fisher og Bryndís Lúðvíksdóttir fá viðurkenningu fyrir mjög vel viðhaldið gamalt hús með snyrtilegum garði.

Fornverk í Höfnum – Fyrirtæki
Sveinn Enok Jóhannsson fær viðurkenningu fyrir að auka kunnáttu á fornu verklagi með námskeiðahaldi og fyrir viðhald á fornum görðum í Höfnum.

Hringbraut 79 – Tilnefning frá íbúum
Viðurkenning fyrir snyrtilegan og vel viðhaldinn einkagarð. Anna Marie Kjærnested tók við viðurkenningu fyrir hönd íbúa.


Reykjanesvegur 44 – Einkagarður
Vilborg Sævarsdóttir og Garðar Einarsson fá viðurkenningu fyrir fallegan og vel viðhaldinn einkagarð með fjölbreyttu plöntu- og gróðurúrvali.






