Braut rúður í bílum og fyrirtæki
Rúðubrjótur var handsamaður af lögreglu fyrir hádegi í dag eftir að hafa brotið afturrúður í þremur bílum við Nesvelli í Reykjanesbæ og einnig í verslun AB varahluta í Njarðvík, sem deilir húsnæði með lögreglunni á Suðurnesjum.
Fjölmennt lið lögreglu tók þátt í aðgerðinni og var lögreglan fljót á vettvang við AB varahluti en lögreglan er með starfsstöð í sama húsi.
Samkvæmt heimildum Víkurfrétta notaði einstaklingurinn slökkvitæki til að brjóta rúðurnar og er eignatjón talsvert.










