Kallað eftir hugmyndum íbúa um nýtingu á tómum olíutönkum á Nikkelsvæðinu
Hugmyndir um að nýta þá í fjölbreytta menningar- og listasýningarstarfsemi
Skoðun og ástandsskýrsla á stóru olíutönkunum sjö á svokölluðu Nikkelssvæði í Reykjanesbæ hefur leitt í ljós að mannvirkin eru í góðu ástandi og mun betra standi en óttast var. Málið var tekið fyrir í umhverfis- og framkvæmdaráði og síðar rætt á bæjarstjórnarfundi, en tankarnir hafa lengi vakið spurningar meðal bæjarbúa um öryggi og framtíðarnýtingu.
Í umræðum á fundi bæjarstjórnar upplýsti Guðbergur Reynisson, formaður umhverfis- og framkvæmdaráðs, að farið hefði verið inn í og kafað ofan í stöðu tankanna. Miklar áhyggjur höfðu verið uppi um að í þeim leyndust hættuleg efni eða olíuleifar úr fortíðinni.
Í ljós kom að tankarnir eru annaðhvort alveg tómir eða eingöngu með hreinu vatni. Niðurstaða sérfræðinga er að stál- og steypuvirki þeirra séu það traust að þau geti staðið óhreyfð og örugg í 60 til 70 ár til viðbótar. Því er hvatt til þess í skýrslunni að mannvirkjunum verði ekki eytt heldur verði fundin skapandi og samfélagslega gagnleg nýting á þeim.
Guðbergur hvatti menningarráð sveitarfélagsins og íbúa alla til að láta ljós sitt skína og huga að möguleikunum sem búa í tönkunum. Hugmyndir hafa þegar kviknað um að breyta tönkunum í sýningarsali, söfn eða annan vettvang fyrir fjölbreytta menningar- og listasýningarstarfsemi líkt og gert hefur verið með lík mannvirki erlendis.
Guðbergur hvatti bæjarbúa, hvort sem þeir væru með skráð lögheimili í bænum eða ekki, til að nýta ábendingagátt Reykjanesbæjar og senda inn hugmyndir um hvernig mætti umbreyta Nikkelstönkunum í spennandi kennileiti fyrir samfélagið.






