Sérhannaðir ljósastólpar lýsa upp strandleið og stíga
Feðgarnir Óskar og Brynjar Húnfjörð hjá Íslandshúsum hafa í samstarfi við Reykjanesbæ þróað nýja gerð ljósastólpa, ljósálfa, sem ætlaðir eru fyrir krefjandi íslenskar aðstæður. Stólparnir hafa þegar verið settir upp á göngustígum meðfram sjávarsíðunni í Keflavík og Njarðvík og hafa vakið áhuga sveitarfélaga víða um land.
Göngustígarnir meðfram strandlengjunni í Reykjanesbæ eru mikið notaðir allt árið. Þar mætast hins vegar vindur, salt, frost og sjógangur og því getur reynst erfitt að halda lýsingu og rafbúnaði í góðu ástandi.
Óskar Húnfjörð, stofnandi Íslandshúsa, segir að þróun ljósastólpanna hafi tekið um tvö ár. Verkefnið hafi orðið til í samtali við Reykjanesbæ vegna þeirra áskorana sem bærinn stóð frammi fyrir við lýsingu á göngustígum við sjóinn.
„Það þurfti að hanna stólpa sem væri fallegur, sterkur og gæti staðist þessar erfiðu aðstæður. Við vildum jafnframt komast hjá hefðbundinni járnbendingu vegna þess að stólparnir eru nálægt sjó og við vildum ekki eiga á hættu að tæring kæmi upp til lengri tíma,“ segir Óskar.
Sérstök steypublanda fyrir erfiðar aðstæður
Íslandshús unnu með danska sementsframleiðandanum Aalborg Portland við að finna rétta steypublöndu fyrir stólpana. Að sögn Óskars er steypan mun sterkari en sú sem almennt er notuð í húsbyggingum.
Rafkerfið þurfti einnig að vera sérstaklega vel varið enda getur sjór gengið yfir hluta mannvirkjanna. Þá þurftu stólparnir að þola seltu, frost og veðurálag, auk þess sem horft var til þess að þeir væru nægilega traustir til að draga úr hættu á skemmdarverkum.
Framkvæmdin við strandlengjuna reyndist þó ekki aðeins snúast um stólpana sjálfa. Eldri lagnir undir göngustígunum voru víða illa farnar og höfðu sumar verið fullar af sjó árum saman. Á köflum þurfti því að brjóta upp steypta stétt, endurnýja lagnir og útbúa nýjar undirstöður.
„Þetta er aðferð sem kostar sitt en við erum að horfa til langs tíma. Ég segi gjarnan að menn eigi ekki að spyrja hvað þetta kosti heldur hvað þetta kosti á ári. Það er það sem skiptir sveitarfélögin máli,“ segir Óskar.
Tilraunir með stólpana hafa staðið yfir í um tvö ár og fyrstu stólparnir við sjávarsíðuna í Keflavík hafa nú verið í notkun í rúmt ár. Að sögn Óskars hafa þeir staðist prófið með prýði.
Lýsingin færð lengra eftir strandlengjunni
Fyrir síðustu jól voru sambærilegir stólpar settir upp við göngustíg á Kambi í Njarðvík. Þar var notuð sérhönnuð undirstaða sem grafin er í jarðveg við stíginn og stólpinn síðan skrúfaður ofan á hana.
Í vor var verkefninu síðan haldið áfram eftir strandlengjunni í Innri-Njarðvík og í átt að Stapa. Þar þurfti einnig að gera við eldri lagnir og endurnýja frágang á köflum.
Ljósaröðin tengist meðal annars litlu útivistarsvæði við gamlan brunn við stíginn í Kópu í Innri-Njarðvík. Þar er lýsingunni ætlað að draga fram sögulegt umhverfi staðarins og skapa ákveðna torgstemningu fyrir þá sem fara um svæðið.
„Þetta hefur tekist óskaplega vel. Það er gífurleg umferð um þessa göngustíga og mikil ánægja meðal fólks með að verið sé að bæta lýsinguna,“ segir Óskar.
Hann segist sjálfur hafa upplifað hversu fjölbreyttur hópur nýtir stígana. Þegar hann var nýlega að prófa lýsinguna hafi hann hitt tvo unga menn sem höfðu hjólað stíginn og sest niður á bekk til að spjalla.
„Það er alveg ótrúlega skemmti-leg stemning þarna. Fólk gengur, hjólar og fer með hundana sína. Það eru í raun allir að nýta þetta.“
Merki, listaverk og sögur í stólpunum
Brynjar Húnfjörð, framkvæmdastjóri Íslandshúsa, segir hönnun stólpanna bjóða upp á ýmsa möguleika. Grunnurinn sé hvít steypa og því sé hægt að framleiða þá í mismunandi litum eftir óskum hvers sveitarfélags.
Stólparnir í Reykjanesbæ eru dökkgráir og merki bæjarins er steypt inn í þá. Brynjar segir merkið njóta sín sérstaklega vel þegar birtan fellur á það og skuggarnir draga það fram.
Einnig hefur verið þróuð lausn þar sem hægt er að koma fyrir laserprentaðri plötu úr ryðfríu stáli á stólpunum. Þannig væri til dæmis hægt að setja myndir af bæjarlistamönnum, persónum úr Íslendingasögunum eða upplýsingar um sögu viðkomandi staðar á hvern stólpa.
„Þetta gefur möguleika á að hafa ekki aðeins fallega lýsingu heldur líka einhvers konar sögugöngu eða upplýsingamiðlun eftir stígnum,“ segir Brynjar.
Áhugi víða um land
Reykjanesbær er ekki eina sveitarfélagið sem hefur sýnt lausninni áhuga. Íslandshús hafa lánað sveitarfélögum víða um land stólpa og undirstöður svo hægt sé að prófa búnaðinn í raunverulegu umhverfi áður en ákvörðun er tekin um stærri framkvæmdir.
Þannig geta sveitarfélög prófað mismunandi fjarlægð á milli stólpa, metið birtuna og fengið viðbrögð íbúa. Nýlega hóf Ísafjarðarbær til að mynda að setja upp stólpa af þessari gerð.
Feðgarnir segja verkefnið við strandlengjuna í Reykjanesbæ gott dæmi um hvernig samtal fyrirtækis og sveitarfélags getur leitt til nýrrar íslenskrar vöru.
„Við viljum gera hlutina vel frá upphafi,“ segir Brynjar og bætir við: „Góð ending skiptir gríðarlega miklu máli þegar horft er til framtíðar.“
Endurnýja lýsingu á 11 kílómetra strandleið
Lýsingin sem nú er unnið að við strandleiðina í Njarðvík er framhald stærra verkefnis Reykjanesbæjar við endurnýjun lýsingar á hinni ellefu kílómetra löngu strandleið. Verkefnið hófst við strandleiðina í Keflavík en síðar var Kamburinn í Njarðvík lýstur upp með svonefndum ljósálfum.
„Þessi framkvæmd nær til stórs hluta strandleiðarinnar í Njarðvík sem fékk ekki lýsingu þegar leiðin var upphaflega lögð,“ segir Aron H. Steinsson, veitustjóri Reykjanesbæjar.
Ljósálfarnir eru um 60 sentímetra há steypt ljós sem Íslandshús á Ásbrú þróaði í samstarfi við Reykjanesbæ og Hildiberg ljósahönnun. Þeir voru sérstaklega hannaðir fyrir erfiðar aðstæður við sjávarsíðuna, þar sem salt, vindur, snjór og frost fara illa með hefðbundinn ljósabúnað. Fyrstu hundrað ljósálfarnir voru settir upp árið 2025.
Ljósinu er beint niður á gönguleiðina til að draga úr ljósmengun og glýju. Mjúk birta fellur jafnframt á grjót og nærumhverfi stígsins. Ljósbúnaðurinn er útskiptanlegur þannig að ekki þarf að skipta um sjálfa steypueininguna þegar ljósgjafinn hefur lokið líftíma sínum.
Framkvæmdin fellur að nýsamþykktum leiðbeiningum Reykjanesbæjar um ljósvist. Þar er lögð áhersla á hlýja lýsingu, lágmarksbirtu og að ljósinu sé aðeins beint þangað sem þess er þörf. Sérstakrar varfærni skal gæta á strand- og náttúrusvæðum til að varðveita myrkurgæði og draga úr áhrifum á fugla og annað lífríki.
Næsti áfangi verkefnisins er fyrirhugaður á næsta ári. Þá stendur til að lýsa upp strandleiðina á Vatnsnesi og gönguleiðina neðan Bakkastígs í Ytri-Njarðvík.

Feðgarnir Óskar og Brynjar Húnfjörð hjá Íslandshúsum hafa þróað ljósálfinn.







