Hönnunarhugsun Bláa Lónsins
Bláa Lónið kynnti hönnunarhugsunina að baki upplifun gesta og þróun áfangastaða fyrirtækisins í tilefni af Útflutningsverðlaunum forseta Íslands 2026. Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins, opnaði viðburðinn og fjallaði um sýn Bláa Lónsins fyrir íslenska ferðaþjónustu.
„Við höfum alveg skýra sýn, við trúum því að Ísland geti orðið einn fremsti upplifunar- og vellíðunaráfangastaður heimsins. Innan félagsins hefur byggst upp dýrmæt þekking sem við nýtum þegar við þróum nýja áfangastaði, hönnunarvinnan leggur grunn að verðmætasköpun til framtíðar,“ segir Sigríður Margrét.
Bláa Lónið hlaut verðlaunin nú í annað sinn, en fyrirtækið hlaut þau fyrst árið 2004. Frá stofnun hefur starfsemin þróast og þekking byggst upp á því hvernig skapa má verðmæti úr samspili náttúru, rannsókna og hönnunar.
Sigurður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri hönnunar, fjallaði um hvernig þekking á þörfum gesta, náttúran á hverjum stað og náið samstarf ólíkra fagstétta móta þróunarverkefnin. Blue Lagoon Design, hönnunarteymi fyrirtækisins sem er þverfaglegur hópur með aðstöðu í Garðabæ og Mílanó, leiðir hönnunarvinnuna í samstarfi við hönnuði, arkitekta, verkfræðinga og aðra sérfræðinga.
„Við byrjum á því að skilja fólkið sem kemur til okkar. Eftir hverju sækist það og hvernig sköpum við réttar aðstæður fyrir ógleymanlega upplifun? Sumir vilja verja tíma saman, aðrir leita að ró og næði. Þekking og reynsla innan félagsins hafa áhrif á ákvarðanir í okkar teymi, allt frá skipulagi rýma til þess hvernig við tökum á móti gestum,“ segir Sigurður.
Náttúran gefur hönnuninni stefnu. Jarðsjórinn með sínum sérstæðu eiginleikum og hraunið í Svartsengi hafa frá upphafi mótað upplifun Bláa Lónsins. Við þróun annarra áfangastaða er einnig unnið út frá náttúru og sérkennum hvers staðar og þeim möguleikum sem þar eru til að skapa upplifun fyrir gesti.
„Við hönnum í samtali við náttúruna. Við skoðum hvað einkennir hvern stað og hvernig við getum gefið fólki færi á að upplifa það sem sterkast. Hver staður er einstakur og kallar á sína nálgun segir Sigurður.






