Áhyggjur af aukinni unglingadrykkju á Ljósanótt
Kallað eftir forvörnum og bættu aðgengi að athvarfi
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar fjallaði um framkvæmd Ljósanætur á síðasta fundi sínum í kjölfar þess að skýrsla barnaverndarþjónustunnar um hátíðina var lögð fram í velferðarráði. Þótt hátíðin hafi í heild sinni gengið vel og dregið að á milli 30 og 40 þúsund gesti í frábæru veðri, skyggði aukin ölvun ungmenna á hátíðarhöldin.
Í skýrslu barnaverndar kom fram að viðbragðsaðilar og starfsmenn hefðu mætt mikilli ölvun og virðingarleysi meðal ungmenna á hátíðarsvæðinu. Umræðan í bæjarstjórn leiddi í ljós alvarleg dæmi þar sem börn allt niður í 7. bekk náðust undir áhrifum áfengis og þurftu aðstoð lögreglu.
Hjörtur Magnús Guðbjartsson, bæjarfulltrúi minnihlutans og framhaldsskólakennari, lýsti yfir áhyggjum af þróuninni. Hann sagði frá því að hafa gengið um bæinn með fjölskyldu sinni og séð ungmenni undir lögaldri fela áfengisflöskur og barn í 7. bekk í járnum hjá lögreglunni. Hjörtur benti á að unglingadrykkja hefði farið vaxandi á nýjan leik og hvatti til þess að samfélagið allt tæki höndum saman líkt og gert var í forvarnarstarfi um aldamótin.
Þá kom fram í skýrslu barnaverndar að staðsetning athvarfs fyrir ungmenni á hátíðinni hefði ekki verið nægilega góð vegna fjarlægðar frá þeim stað þar sem ungmennin héldu sig mest. Erfitt hafi reynst að koma ungmennum sem áttu í erfiðleikum í skjól vegna þessarar vegalengdar.
Díana Hilmarsdóttir bæjarfulltrúi minnihlutans og Margrét Þórarinsdóttir forseti bæjarstjórnar tóku undir mikilvægi þess að læra af reynslunni. Þær lögðu áherslu á að athvarfið yrði fært nær hátíðarsvæðinu og „unga planinu“ fyrir næstu Ljósanótt til að tryggja að öll ungmenni sem sækja hátíðina geti fengið skjóta og greiða aðstoð þegar á þarf að hald






