Meira en 80% fækkun á fjárhagsaðstoð
Fólki sem þiggur fjárhagsaðstoð í Reykjanesbæ hefur fækkað um meira en 80% á tveimur árum. Í mars 2023 fengu 378 einstaklingar aðstoð, en í júlí á þessu ári voru þeir 70. Í sama mánuði í fyrra voru 118 einstaklingar á fjárhagsaðstoð.
Þróunin var rædd í bæjarstjórn, þar sem starfsfólki velferðarsviðs var þakkað fyrir árangurinn. Hann er rakinn til markvissra virkjunarúrræða og samstarfs við Vinnumálastofnun, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Björgina og MSS.
Áhersla hefur verið lögð á að koma fólki í virkni, tryggja því stuðning og greiða leið þess aftur út á vinnumarkað. Bæjarfulltrúar fögnuðu þróuninni og vilja halda áfram á sömu braut.






